Og ég var ekkert búinn að venjast "N1"

Þessu var bara breytt um daginn, finnst mér.  Hvenær mun því verða breytt aftur í "Essó?"


mbl.is Breytingar hjá N1 og nýtt nafn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Pissað uppí vindinn aftur

Því það hefur alltaf reynst svo vel.

Mik­il­vægt er að Alþingi Íslend­inga taki hönd­um sam­an til að stemma stigu við ópíóðafar­aldri á Íslandi.

En er það í raun faraldur?

Fyrst segja þeir alltaf að til sé sívaxandi vandamál.  Sem kannski er ekkert til.  Svo fara þeir og þykjast leysa það.  Þá verður til raunverulegt vandamál.

Það er mín reynzla af ríkinu.

... 29 dauðsföll til rann­sókn­ar þar sem grun­ur leik­ur á að lyf hafi komið við sögu.

Í heildina?  Aspirín meðtalið? (Það er víst banvænt.)

Sagði verk­efn­is­stjóri lyfja­mála hjá embætti land­lækn­is það vekja at­hygli að mats­gerðum hafi fjölgað mjög; til­fell­in hafi verið 32 allt árið í fyrra sam­an­borið við 29 á fyrri helm­ingi þessa árs,

Semsagt, svo vitað sé. (Bendir til fleiri tilfella, ef eitthvað er - sem aftur bendir til ónákvæmni sem aftur gerir tölurnar svona vísbendingu frekar en staðreynd.  Lágmark.)

...meðal­ald­ur sé að lækka og marg­ir ein­stak­ling­ar sem hafa tekið tals­vert af lyfj­um stuttu fyr­ir and­lát hafa ekki fengið þeim ávísað.

Einhverjir eru að drýgja tekjurnar, kannski.

Erum við að sjá tímabundna bólu - tízkusveiflu meðal fíkla?

Starfs­hóp­ur­inn skilaði af sér til­lög­um í níu liðum og miða þær að því að tak­marka aðgang að ávana­bind­andi lyfj­um, auka fræðslu hjá fag­stétt­um og al­menn­ingi, herða eft­ir­lit með ávís­ana­venj­um lækna, gera kröf­ur um bætta grein­ingu á ADHD, bæta aðgang að öðrum úrræðum en lyfj­um við meðferð á ADHD, svefn­vanda, kvíðarösk­un­um og lang­vinn­um verkj­um.

Síðan hvenær fóru menn að taka ópíum við ADHD?

Ólaf­ur Þór Gunn­ars­son, lækn­ir og þingmaður Vinstri grænna, benti á vand­ann sem fylgi því að fólk fái ávísað lyfj­um er­lend­is sem flutt eru til lands­ins árituð.

Er rangt að fólk leyti sér lækninga i útlöndum?  Má lyfjagjöf ekki halda áfram eftir að komið er yfir landamærin?  Ef fólk er með pappíra fyrir þessu, hver er vandinn?

Anna Kol­brún Árna­dótt­ir, þingmaður Miðflokks­ins, sagði þörf á þjóðarsátt geng far­aldr­in­um. Sagði hún að ef það reynd­ist rétt að auðveld­ara væri að verða sér úti um fíkni­efni en að panta pítsu þurfi all­ir í sam­fé­lag­inu að taka hönd­um sam­an.

Það er þannig.  Það er vegna þess að viðskiftin eru ólögleg.  Ef ÁTVR byði uppá 24 stunda heimsendingu á Ákavíti gæti ég trúað að drægi aðeins úr þessu.  *Smávegis.*

Hall­dóra Mo­gensen, þingmaður Pírata, og Helga Vala Helga­dótt­ir, þingmaður Sam­fylk­ing­ar­inn­ar, töluðu báðar um bætt aðgengi að neyðar­lyf­inu Naloxon.

Það er varla við öllu.  Hvað gerist ef það er gefið við einhverji öðru, fyrir slysni?

Bara spyr.  Er ekki læknir...

Hall­dóra talaði sömu­leiðis um að stjórn­völd þurfi að gæta þess að auka ekki frek­ar á vanda fíkla með aðgerðum sín­um.

Blessuð vertu, þau hugsa ekkert um það.

Þá geti tak­markað fram­boð sömu­leiðis skapað eft­ir­spurn eft­ir t.d. heróíni sem opni á ann­an og hættu­legri vanda.

Nah, sama vandamál, annað nafn.

Viljiði draga úr neyzlu á ópíumskyldum efnum?  Gerið aðgang að öðrum efnum auðveldari.  Dópistar elta bara vímuna.  Sumum er sama hvernig hún fæst.  Svo deyja þeir bara úr ofneyzlu á einhverju öðru í staðinn.


mbl.is Þjóðarsátt gegn ópíóðafaraldri
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Alvarlegt kannski, en ekki óvænt

Svo margt sem ríkið gerir er byggt á röngum upplýsingum eða tilbúningi, svo það er alveg í samræmi að upplýsingar um hitt og þetta á vef Alþingis séu ónógar eða uppspuni.


mbl.is „Það er ekki bara eitt hótel í Nuuk“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 25. september 2018

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband