1.10.2019 | 20:20
Raunverulega ástæðan er þarna, með áróðrinum:
Q: "Með stækkandi miðstétt hafi heilsuvitund Rússa líka aukist og með því hafi áfengisneyslan tekið breytingum. Í fátækari byggðum þar sem heimabrugg er enn algengt er áfengisneyslan [...] enn mikil."
Því betra sem þú hefur það því minni ástæðu hefurðu til að vera alltaf fullur.
Þessi síðasta málsgrein útskýrir það allt.
43% samdráttur í áfengisneyslu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
1.10.2019 | 16:56
Pósturinn vs. smygl-gengi
Pósturinn er ríkisöfyrirtæki. Þeir kalla hann "OHF" núna, vegna þess að bókhald. Ríkið getur aldrei haft neitt einfalt.
Á hverju ári versnar þjónusta póstsins, og hún verður dýrari. Er núna tvöfalt dýrar, að minnsta kosti, en fyrir 2 árum.
Eiturlyfja-smygl gengi eru ólögleg. Á hverju ári teklur ríkið marga meðlimi þeirra fasta, stelur af þeim varningnum og eyðir honum (í þágu kolefnisfótspors er ég að ímynda mér) og veldur hjá þeim hverskyns öðrum búsifjum.
Á hverju ári verða eiturlyf ódýrari, og þjónsutan við neytendur betri.
Hmm...
Hvað ef við gerðum póstsendingar ólöglegar, og færum að lobbýa fyrir "póstlausu íslandi fyrir 2050" og vera með allskyns forvarnir og vesen. Þá gæti svo farið að póstsendingar yrðu ódýrari og þjónustan myndi aftur batna.
Rök með:
Þetta væri allt í einu allt skattfrjálst, sem þýðir:
1: lægri kostnaður á starfsmann sem nemur auðveldlega mánaðarlaunum á mann.
2: ~20% af sendingarkostnaði er matarskattur.
3: ekkert kolefnisgjald
4: engin sérstök gjaldagjöld, því ef þessi glæpon er og dýr þá snýr maður sér bara að næsta (samkeppni, sko)
5: VISA/Mastercard er ekki kostnaður lengur, af augljósum ástæðum
6: aukinn metnaður vegna þess hve auðvelt er að fara í samkeppni.
Eins og er, þá býst ég sterklega við að pósturinn versni bara. Það verður farið að svara kostnaði og veseni að bera bara pakka með sér í farangrinum fyrir vini og vandamenn eftir ekkert langan tíma.