Ég tek þátt í Jólabókaflóðinu

Um að gera að vera tímanlega í að plögga það.  Gef þetta út á amazon.  Látum það nú hljóma eins bókmenntalega og hægt er, til að höfða til áhorfenda Egils Helga:

Könguljónið:

Afbygging á sagnaminninu um skrímsli sem leikur lausum hala, með mið af íslenskum veruleika, lögum og reglugerðum og meðfæddum áhuga manna á að halda áfram að vera lifandi.

Of hardcore fyrir sósíalinn:

Innblásið af ritgerð Umberto Eco um eðli kláms, og hvernig efnistökum þess gætu verið settar skorður í félagshyggju-þjóðfélagi.

Gott fólk:

Stutt hugleiðing um endanlegt takmark neyzlustýringarinnar.

Ævintýri Hitlers í 101:

Hvernig myndi hinum heimsfræga einræðisherra reiða af í miðborginni?  Og myndi hann borða Búbb-ís?

Maðurinn í Hornherberginu: 

Maður beitir yfirnáttúrulegum aðferðum til að ná pólitískum frama.

Fáanleg hér: Fimm furðusögur fyrir svefninn

514IJZvUDtL._SX311_BO1,204,203,200_

Ljóslega flottasta kápumynd ársins.


Bloggfærslur 29. október 2019

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband