Viljiði ekki að Vítisenglar séu á landinu?

Það ætti að vera einfalt, en jafnframt ómögulegt að redda því.

Sjáið til:

Þetta er eins og blóm - túnfífill eða eitthvað slíkt.  Þetta dafnar ekki nema skilyrðin séu fyrir hendi.

Hver eru skilyrðin?

Ja, ekki viss.  Við ættum að skoða hvað það er í útlöndum sem veldur því að menn ganga í klúbba, og þegar búið er að grennzlast fyrir um það þá ætti að vera einfalt að breyta bara skilyrðunum.

Ég held ekki í alvöru að raunverulegur vilji sé hjá nógu mörgum - sérstaklega ekki valdhöfum - til að breyta skilyrðunum. 

Ég held að það þurfi ekki að banna neitt.  Þvert á móti.  En hey... Vítisenglar angra mig ekki, til eða frá. 


mbl.is Engin lausn að banna Vítisengla
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband