Er það? Ég er ekki svo viss.

Vís­bend­ing­ar eru um að viðhorf Íslend­inga til alþjóðavæðing­ar, svo sem er­lendr­ar sam­keppni og alþjóðaviðskipta, sé nei­kvæðara nú en áður.

Hverjar eru þær vísbendingar? 

Björn Brynj­úlf­ur Björns­son, hag­fræðing­ur Viðskiptaráðs Íslands, seg­ir að svo virðist sem að við séum í meira mæli far­in að loka okk­ur af.

Við? 

„Við þykj­um hafa nei­kvæðara viðhorf en áður gagn­vart til dæm­is er­lendri sam­keppni og fjár­fest­ingu,“

Ég hef ekki mikið tekið eftir að fólk hafi almennt haft gott viðhorf til *einhverrar* samkeppni - nema kannski bara nánustu vinir.  En þeir eru ekki allir, og frekar slæmt úrtak. 

„Það sem er ef til vill erfiðast fyr­ir okk­ur er að opna hag­kerfið fyr­ir alþjóðaviðskipt­um.

Vandamál búið til handa okkur af ríkinu.  *Við* sem fólkið í landinu réði þar engu um.

Við búum við háa tolla og vöru­gjöld sem draga úr slík­um viðskipt­um.

Aftur, ríkið, ekki fólkið. 

... og þá er viðhorf okk­ar til þess að opna landið fyr­ir er­lendri sam­keppni nei­kvætt,

Getur verið að það sé bara ríkið? 

Banda­rík­in tróna á toppi list­ans og á eft­ir koma Sviss, Singa­púr, Hong Kong, Svíþjóð, Þýska­land og Kan­ada.

Löndin sem við forðumst að bera okkur saman við - sumpart vegna fordóma, sumpart vegna kommúnisma. 

Aðspurður hvað átt sé við með sam­keppn­is­hæfni seg­ir Björn Brynj­úlf­ur að það byggi á þeirri kenn­ingu að ríki heims kepp­ist um að bæta lífs­kjör þegna sinna líkt og fyr­ir­tæki.

Hér er það bara kenning.  Úti er það greinilega kenning í praxís. 

„Á sama hátt og fyr­ir­tæki keppa sín á milli um viðskipta­vini til að auka hagnað hlut­hafa sinna kepp­ast ríki um mannauð og fjár­magn til að bæta lífs­kjör þegna sinna. Í því felst sam­keppn­in,“ seg­ir hann.

Stutt er síðan við losnuðum við stjórn sem vann akkúrat öfugt við þetta. 

... og at­vinnu­stigið hækkað. 

Hvað er "atvinnustig," og hvernig veit maður hvenar það hækkar?  Eða fáum við fleiri slík stig?

 Vaxta­stigið er hátt 

Er það? eða eru vextir kannski bara háir?  Hmm... þarf að hgsa það betur, eftir að ég hef endurskoðað sokkastigið, sem mér sýnist í meðallagi, kannski 43. sæti á heimsmælikvarða.  Eða hvað varðar heimsmælikvarða.  Eða hvaða ambögu sem menn nota nú til dags til þess að torvelda skilning.  Að auki er matarstigið nokkuð lágt eins og er, og þarf að hækka.  Held að kattastig nágrannastigsins hafi jafnvel komist í mjólurstigið og lækkað það.

erfitt er fyr­ir fyr­ir­tæki að afla sér fjár á markaði vegna gjald­miðils­ins og haft­anna.

Ég er viss um að þetta hefur allt með höftin og almennt vantraust á satt að segja mjög vafasömum stjórnvöldum okkar að gera, en ekkert með gjaldmiðilinn.  


mbl.is Neikvætt viðhorf til alþjóðavæðingar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband