Ég man þá tíð er VG réðu einhverju

Katrín Jak­obs­dótt­ir, [...] sagði í máli sínu við upp­haf flokks­ráðsfund­ar Vinstri grænna,[...] mik­il­vægt að flokk­ur­inn taki upp á sína arma hug­tök sem „hafa of lengi verið í gísl­ingu hægri afl­anna.“ Nefndi hún þar hug­tök­in frelsi, stöðug­leika og ör­yggi.

En hingað til hefur flokkurinn bara ekkert staðið fyrir þessi hugtök.

Má búast við einhverri hægri-sveiflu hjá þeim í framtíðinni?

„Frelsið sem hef­ur verið í einka­eign Sjálf­stæðis­flokks­ins um langt skeið.

Svolítið merkilegt, þar sem sá flokkur er nú ekki beint hámark frjálshyggjunnar.

Sjálf­stæðis­flokkn­um tókst svo vel að eigna sér frels­isorðið að marg­ar aðrar stjórn­mála­hreyf­inga veiguðu sér við að tala um það,“

Það er nú ekki alveg rétt, en hvað um það.  Hún heldur það.

sagði Katrín og bætti við að frelsi Sjálf­stæðis­flokks­ins hafi hins veg­ar þró­ast út í að vera aðeins frelsi hinna fáu og efna­miklu til að „maka krók­inn, iðulega með sér­stakri rík­isaðstoð á kostnað frels­is fjöld­ans.“

En það hefur einmitt verið stefna allra flokkanna.  Svo ég hef séð með eigin aukum, að minnsta kosti.

Eini munurinn er kannski sá að Sjálfstæðisflokkurinn leyfir öðrum en bara örfáum útvöldum að verða auðugir.  Flokkur Kötu er hinsvegar mikið á móti því að óflokkstengt fólk eigi eignir.

Sagði hún frelsi fólks til að sækja sér mennt­un­ar og heil­brigðisþjón­ustu við hæfi hins veg­ar gleym­ast.

Var hún að rifja það upp núna áðan?  Gott, batnandi manneskju er best að lifa.

Sömu sögu er að segja um frelsi fólks til að búa í sam­fé­lagi þar sem dag­vinnu­laun duga fyr­ir mann­sæm­andi lífi.

Ég gleðst ef það er hin nýja stefna VG.  Það er vissulega mikil stefnubreyting, alveg 180° frá því sem alltaf var, en hey...

„Þegar skorið er niður þannig að þjón­usta við al­menn­ing rýrn­ar, aðgang­ur eldri en 25 ára að fram­halds­skóla­mennt­un er skor­inn niður, gjöld fyr­ir lækn­isþjón­ustu eru hækkuð, fjár­fest­ing­ar í rann­sókn­um og ný­sköp­un eru skorn­ar niður, þannig að framtíðar­tæki­fær­um í land­inu okk­ar fækk­ar, þá er verið að skerða frelsi fjöld­ans til að lifa góðu lífi,“ sagði Katrín og bætti við að Vinstri græn ættu að taka hug­mynd­ina um frelsi fjöld­ans og gera það að sínu.

180°. 

Vék Katrín sér því næst að stöðug­leika. Velti hún upp þeirri spurn­ingu hvort stöðug­leiki sner­ist ein­ung­is um að þeir sem eru efna­meiri auki hlut sinn enn frek­ar.

Ja, seinast þegar VG fengu að ráða dró heldur á milli þeirra efnameiri og allra hinna, svo... án þess að ég sé að ætla henni skoðanir, þá er það það sem hún hefur verið að stuðla að.

Hvers vegna veit ég ekki.

„Þannig er staðan á Íslandi. Rík­ustu 10 pró­sent­in eiga 70 pró­sent alls auðs. […] En snýst skatta­stefna nú­ver­andi stjórn­valda ekki ein­mitt um að halda því ástandi stöðugu?" 

Skattastefna seinustu stjórnar stefndi að því að auka bilið.  Og það var að svínvirka.  Núna, með nýrris tjórn hefur aðeins létt á þeim sem hafa verðtryggð lán.  Þar hjálpar reyndar bensínverðslækkun mikið, það er ekki allt D & B að þakka.

Þá sagði Katrín einnig mik­il­vægt að end­ur­skoða hug­takið ör­yggi. Í stað þess að tengja það ein­vörðungu við hugs­an­leg vopna­kaup lög­regl­unn­ar hlyti hug­mynd­in um ör­yggi að snú­ast um að byggja upp friðsamt jafnaðarsam­fé­lag.

Af hverju var hennar fólk þá að panta öll þessi vopn?

„Þar sem fólk get­ur lifað mann­sæm­andi lífi með aðgengi að mennt­un og heil­brigðisþjón­ustu og öðrum mik­il­væg­um þátt­um. Eða þak yfir höfuðið, sem er það sem unga kyn­slóðin sér ekki fram á núna.

Af hverju gerði hún og hennar lið ekkert í þeim málum annað en að gera þau verri?

Öryggi hef­ur nefni­lega ekk­ert með skot­vopn eða for­virk­ar rann­sókn­ar­heim­ild­ir að gera, sem enn og aft­ur hef­ur skotið upp koll­in­um hjá hæst­virt­um inn­an­rík­is­ráðherra,“ sagði hún.  

Jú og nei...

Vopnuð lögregla hjálpar ekkert nauðsynlega, sjá td sum fylki USA, þar sem lögreglan mætir alltaf þegar búið er að myrða alla, og á sama hátt Noreg og Frakkland, þar sem það sama á við.

Og Frakkar hafa haft forvirkar rannsóknarheimildir lengi, en samt... hjálpaði þeim ekkert.


mbl.is Frelsi hinna fáu til að maka krókinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Tek undir allar þína athugasemdir.

Góður...wink

Sigurður K Hjaltested (IP-tala skráð) 7.2.2015 kl. 18:46

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband