Ritskoðun.

„Orð hafa áhrif og eru til alls fyrst. Ef við leyf­um niður­lægj­andi og meiðandi tón að grass­era í umræðunni fer hann að þykja sjálf­sagður og vinn­ur þannig gegn mark­miðum okk­ar um jöfn tæki­færi allra til þátt­töku í lýðræðis­legri umræðu.“

Og á þá að banna hann?  En lýðræðislegt.

„Við þurf­um einnig að ræða hvenær get­ur tal­ist nauðsyn­legt að tak­marka tján­ing­ar­frelsið

Í þeim tilgangi að gera áróður ríkisins áhrifaríkari?  Það er oftast tilgangurinn.

„Fjöl­miðlar end­ur­spegla ekki raun­veru­leik­ann“

Neibb.  Lestu bara MBL, það er hér fyrir framan þig.  Ekki beint í tengzlum við veruleikann, er það?  En svo versnar það bara... svo er Visisr, og Pressan...

„Fjöl­miðlar gegna hér lyk­il­hlut­verki. Þeir eiga að end­ur­spegla fjöl­breyti­leika sam­fé­lags­ins,“ sagði Eygló

Ég hef fjölmiðla stundum grunaða um að vera með svona ethnic-krakka með sér til að nota í hver skifti sem þeir sýna myndir frá skóla-samkomum.  Gæti verið rangt, en samt...

Og merkilegt nokk, ég hef ástæðu til þess að ætla að ég sé ekki kaldhæðnasti maðurinn á svæðinu.

Kynjuð og stöðluð fram­setn­ing um kon­ur og karla og hlut­verk

... ha?  Gæti einhver þýtt þetta á íslensku?

„Ungt fólk virðist í mörg­um til­fell­um verða áþreif­an­lega vart við ójafn­rétti í sínu lífi

Þið verðir bara að sætta ykkur við ójafnrétti, það er allt hluti af því að búa í samfélagi, lýðræðisleg samfélög leyfa ekki eitt, einræðsissamfélög leyfa ekki annað.  Þannig er það bara.

Allt ykkur sjálfum að kenna.  Og þið munuð viðhalda því, og líka það. 

Smá ritskoðun mun ekki gera annað en að auka á misréttið.


mbl.is Ræða þarf takmörkun tjáningarfrelsis
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Þú rekur fjömiðil sem kallast bloggsíða.

Þín skrif á þessa bloggsíðu eru dæmi um eitthvað sem endurspeglar fjölbreytileika. Enda ertu ekki eins og fólk er flest.

Því eigum við að fagna, og ég tek hatt ofan fyrir þér.

Góðar stundir.

Guðmundur Ásgeirsson, 25.11.2015 kl. 21:35

2 Smámynd: Ásgrímur Hartmannsson

Ég vil frekar líta á mig sem einmiðil.  Enda get ég bara miðlað einu í einu.

Mig langaði miklu frekar að vera miðlari, en það fór allt til fjandans hér um árið.

Ásgrímur Hartmannsson, 26.11.2015 kl. 15:50

3 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Góður. ;)

Guðmundur Ásgeirsson, 26.11.2015 kl. 18:41

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband