... fyrir hvað?

"„Hæl­is­leit­end­ur er ann­ar flokk­ur flótta­manna sem stöðugt sæk­ir til lands­ins og er sam­an­sett­ur mest af ung­um karl­mönn­um sem koma hingað vega­bréfa­laus­ir. Með ný­samþykkt­um lög­um út­lend­inga eru skila­boð Alþing­is skýr til þessa hóps og er að skila sér. Árið 2014 var fjöldi hæl­is­leit­enda 175 en áætlaður fjöldi hæl­is­leit­enda verður 700 á yf­ir­stand­andi ári, eða 98% aukn­ing frá fyrra ári. Dval­ar­gjöld hæl­is­leit­enda, sem ekki fær úr­lausn mála sinna, er 7.800 krón­ur á dag, eða 234.000 krón­ur á mánuði. 2,8 millj­ón­ir á ári. En lág­marks­elli­líf­eyr­ir er þessa dag­ana 212.766 krón­ur,“ sagði Ásmund­ur.

Þá heyrðist hrópað úr þingsal: „Skamm­astu þín!“"

Hvað er svo skammarlegt við að benda á þetta?  Vissu þetta ekki allir?  Var þetta eitthvað til þess að pukrast með?

Hvers vegna?

Eða má bara almennt ekki ræða svona fyrir frama sumt fólk?

Sem er hið versta mál, því þetta er *ríkis* mál.  Það er svolítið mikið hörmulegt ef ríkið má ekki fjalla um málefni ríkisins opinberlega.

„Flest­ir aðlag­ast vel og mik­il­vægt að fólk aðlag­ist sam­fé­lag­inu og verði þátt­tak­end­ur í at­vinnu- og menn­ing­ar­lífi,“ sagði þingmaður­inn.

Það eru náttúrlega bara einhverjir hægri-öfgamenn sem hafa slíkar vonir.

Eða hvað?

„Virðuleg­ur for­seti, eitt þúsund og tvö hundruð millj­ón­ir er það sem myndi kosta að reka skurðstofu á Heil­brigðis­stofn­un Suður­lands á sjúkra­hús­inu í Vest­manna­eyj­um, en þar er eng­in skurðstofa eða fæðing­ar­hjálp að hafa,“ sagði Ásmund­ur, en ljóst var að marg­ir þing­menn í saln­um voru ósátt­ir við mál­flutn­ing Ásmund­ar.

Sumir þurfa að skammast sín, og það er ekki Ási Friðriks.

Stein­grím­ur J. Sig­fús­son[...]: „Maður spyr sig, hvaða til­gangi á svona mál­flutn­ing­ur að þjóna. Útmála það hversu hratt út­gjöld séu að aukast vegna þess að við - að okk­ar litla leyti - erum að tak­ast á við þann risa­vaxna vanda sem við er að glíma varðandi flótta­menn og land­laust fólk um ver­öld víða,

Auðvitað er honum drullusama um ríkisútgjöld, hans velferð er tryggð af ríkinu þó skattgreiðendanna sé það ekki.

...sagði Stein­grím­ur og spurði hvort Ásmund­ur væri nýr talsmaður Sjálf­stæðis­flokks­ins í þess­um mála­flokki í kjöl­far sig­urs í próf­kjöri í Suður­kjör­dæmi.

Við getum bara vonað.

Birgitta Jóns­dótt­ir, þingmaður Pírata, gagn­rýndi Ásmund einnig harðlega. „Eng­inn mál­flutn­ing­ur er eins öm­ur­leg­ur og forsmár eins og að stilla sam­an tveim­ur hóp­um sam­fé­lags­ins gegn hvor öðrum í stað þess að horf­ast í aug­un við, að það er ástæða fyr­ir því að þeir sem eru aldraðir, veik­ir eða ör­yrkj­ar þurfa að búa við erfið kjör,“ sagði Birgitta. 

Síðan hvernær eru hælisleitendur "hópur samfélagsins?"  Og afhverju eiga þeir, algjörlega utanaðkomandi og óviðkomandi, að búa við betri kjör en aldraðir, veik­ir eða ör­yrkj­ar?

„Hans mál­flutn­ing­ur [Ásmund­ar] er ná­kvæm­lega eins og mál­flutn­ing­ur þeirra sem vildi ekki taka á móti gyðing­um í neyð og sendu þá til baka.

Einn tveir og... GODWIN!


mbl.is „Skammastu þín!“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband