Lokaviðvörun? Hann lýgur því.

Það verður hellingur af lokaviðvörunum.  Heimurinn ferst alltaf á morgun fyrir kaffi, og hefur alltaf gert, samkvæmt öllum heimsendaspámönnum, allstaðar, alltaf.

End-is-near-785574

Loftslagsvísindamaður.
mbl.is „Bregðist við núna, fábjánar“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Aztec

Góð mynd hjá þér, Ásgrímur og hittir beint í mark.

Hin aukna móðursýki hjá alarmistunum upp á síðkastið fellur saman með að æ fleiri manneskjur hætta að trúa bullinu og fara að trúa alvöru vísindamönnum frekar.

Hnattræna hlýnunarkenningin sem fyrir löngu er búið að afsanna eru gervivísindi gerð til að ákveðinn hópur manna geti hagnazt á því. Þeir sem ennþá eru of bláeygðir til að efast, gætu spurt sjálfa sig þessarar spurningar: Hvers vegna hafa engir spádómar um bráðnun íss, hækkun yfirborðs sjávar og súrnun hafsins rætzt?

Al Gore (einn af forsprökkunum og einn af þeim sem hefur hagnazt gífurlega á svindlinu vegna opinberra styrkja til fyrirtækis hans, sem var jú meiningin frá byrjun) spáði því að ísinn á Norðurheimskautinu yrði horfinn árið 2011 sem ekki gerðist, síðan aftur 2014 sem heldur ekki skeði. Ísinn þar minnkar á sumrin og haustin og eykst síðan aftur á veturna. Eins og alls staðar annars staðar. Enginn ísbjörn dó eða svalt vegna ísleysis nema með Photoshop.

Hitastig andrúmsloftsins breytist í sífellu, það blása vindar, stundum verða fellibyljir og svona hefur það alltaf verið. Við köllum það "veður". Hitastigsbreytingar hafa aldrei verið af mannavöldum. Þótt meðalhiti jarðar myndi hækki um 1,5 gráður hefur það engin áhrif til lengdar, enda var oft hlýrra en nú. Auk þess er koltvíldið orðið hættulega lágt. Það gleymist oft, að koltvíldi er lífsnauðsynlegt fyrir gróður og þar með allt líf á jörðu.

Aztec, 8.10.2018 kl. 22:13

2 identicon

Hvað er normal hitastig á jörðinni? Það hlýtur að vera eitthað norm hjá þessum sérfræðingum.
Koltvíildi í andrúmsloftinu er 0,08% og má ekki vera minna, ef líf á að þróast á Plánetuni.
Jú, það voru 40.000 fífl í París!

valdimar jóhannsson (IP-tala skráð) 9.10.2018 kl. 16:00

3 Smámynd: Ásgrímur Hartmannsson

Verst að þessir glópar eru svo hátt settir.

Ásgrímur Hartmannsson, 10.10.2018 kl. 16:48

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband