Gaman þegar fólk er að tala um hluti sem það veit ekkert um

Meira gaman þegar það sama fólk er við völd.

"„Við stönd­um á nokkr­um tíma­mót­um þegar kem­ur að efna­hags­mál­um á Íslandi sem og í heim­in­um. Sú hag­fræðikenn­ing sem hef­ur mótað efna­hags­stefnu 20. ald­ar­inn­ar, efna­hags­stefna sem bygg­ir fyrst og fremst á því að halda áfram hag­vexti út í eitt, sú efna­hags­stefna er að líða und­ir lok.“

Þetta sagði Katrín Jak­obs­dótt­ir, for­sæt­is­ráðherra og formaður Vinstri grænna,"

Ef það á ekki að halda hagvexti áfram, þá er eins gott að það verði ekki fólksfjölgun.  Það myndi bara þýða hungur.

"Hún sagði þá að staða launa­fólks sner­ist ekki bara um næstu kjara­samn­inga held­ur einnig hvernig eigi að tak­ast á við lofts­lags­breyt­ing­ar."

Loftslagsbreytingar eru einfalt viðfangsefni: við förum í úlpu ef kólnar, og úr henni ef hlýnar.

"Það muni þýða ger­breyt­ingu á neyslu­venj­um, efna­hags­stjórn og að horfa þurfi frá vaxta­mengi en frek­ar í átt til jafn­væg­is."

Stöðnun, meinar hún.

"„Það ligg­ur fyr­ir að fram­boðið er ekki nægj­an­legt á hús­næði. Þetta virðist vera einn stærsti áhyggju­vald­ur­inn í lífi venju­legs fólks. Það er ekki bara kostnaður við hús­næðin sem leggst sér­stak­lega þungt á lág­launa­fólk, sem er miklu held­ur á leigu­markaði held­ur en þeir sem eiga sín­ar eig­in íbúðir,..." osfrv.

Einn helsti postuli ofstjórnarhyggjunnar veit hvers eðlis vandamálið er, en ekki að hún sjálf hefur unnið ötullega að því að búa vandann til.

Fyrst býr hún til stöðnun, vegna þess að hún er alveg viss um að hagvöxtur sé vondur, svo fussar hún og sveiar yfir skorti á hagvexti, og þeim vandamálum sem það hefur í för með sér.

Af hverju kaus fólk hana?  Viljandi?


mbl.is Hagvaxtarstefnan að „líða undir lok“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Hlutinir gætu  verrveriði t.d. ef fleiri en Reykjavíkurborg tækju upp kynjaða hagstjórn þegar endurbyggja á bragga eða auka framboð á byggingarlóðum

Borgai (IP-tala skráð) 17.11.2018 kl. 18:47

2 Smámynd: Ásgrímur Hartmannsson

Ég veit ekki einu sinni hvað það þýðir.

Ásgrímur Hartmannsson, 17.11.2018 kl. 21:04

3 identicon

Með kynjaðri hagstjórn má réttlæta öll fjármálaútgjöld sem snilli

https://reykjavik.is/kynjud-fjarhags-og-starfsaaetlun

Borgari (IP-tala skráð) 17.11.2018 kl. 23:27

4 Smámynd: Sigurður Kristján Hjaltested

VG er bara urkynjadur flokkur...

Sigurður Kristján Hjaltested, 18.11.2018 kl. 15:18

6 Smámynd: Ásgrímur Hartmannsson

Hagvöxtur er bara heildaraukning framleiðni.
Nema þú sért í VG, þá er það plága frá helvíti.

Ásgrímur Hartmannsson, 18.11.2018 kl. 18:42

7 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Nei, hagvöxtur mælir nefninlega alls ekki framleiðni.

Alltaf gaman þegar fólk er að tala um hluti sem það veit ekkert um.

Guðmundur Ásgeirsson, 18.11.2018 kl. 18:53

8 Smámynd: Ásgrímur Hartmannsson

Jú víst.  Víkkaður sjóndeildarhringinn.  Framleiðni er meira en bara fiskur & ál.

Ásgrímur Hartmannsson, 23.11.2018 kl. 02:49

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband