Það eru allt of margir ríkisstarfsmenn

... og lítið vit er í þeim.

"Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráðherra, seg­ir áform rík­is­stjórn­ar­inn­ar um lækk­un tekju­skatts verða end­ur­met­in ef samið verði um óá­byrg­ar launa­hækk­an­ir í kom­andi kjara­samn­ing­um."

Við skulum endilega fjalla aðeins um óábyrgar launahækkanir, og https://www.mbl.is/frettir/innlent/2018/12/14/pakkaflod_a_althingi/ og aðra óábyrga útgjaldaaukningu ríkisins, https://www.mbl.is/frettir/innlent/2018/12/13/politiskum_adstodarmonnum_mun_fjolga/.

„Við höf­um boðað skatta­lækk­an­ir í þágu þeirra sem eru í neðra þrep­inu, lægri og milli­tekju­hóp­un­um,"

Ég trúi því þegar ég sé það.

"Þá þarf að huga mjög vel að tíma­setn­ingu slíkra aðgerða. Þær eru hugsaðar til að greiða fyr­ir samn­ing­um en ekki til að greiða fyr­ir óá­byrg­um samn­ing­um,“ seg­ir Bjarni."

Hann er ekkert að gera sig vinsælan.  Það er verið að taka Macron á þetta.

"Til­efnið er óvissa um hag­vöxt vegna óróa í ferðaþjón­ust­unni."

Ef ríkið þvældist ekki fyrir öllu öðru, þá væri miklu meira að gerast hér, og minna að hafa áhyggjur af.

"Með því gætu tekj­ur rík­is­sjóðs á næsta ári reynst minni en áætlað var."

Þá þarf ríkið bara að sníða sér stakk eftir vexti.  Eða kunna þeir sem þar ráða ekki að reka ríki?

Hvað erum við að borga einhverjum untermench meira en 2 milljónir á mánuði + útgjöld ef þeir ráða ekki einu sinni við það?

"Miðað við nú­ver­andi af­komu­mark­mið má ekki mikið út af bera til að af­koma fari und­ir gólf fjár­mála­stefn­unn­ar á næst­unni."

Það er ljóðrænt orðað.  En lausinin er jafn einföld og hún er þeim óframkvæmanleg: minnkið bara ríkið.

"Því er svig­rúm til launa­hækk­ana hjá rík­inu lítið."

Það verður litið framhjá því, er ég viss um.  Ég myndi ekki þekkja ríkið af öðru.


mbl.is Horft verður til hækkana
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Halldór Egill Guðnason

Góður!

 Góðar stundir, með jólakveðju að sunnan.

Halldór Egill Guðnason, 19.12.2018 kl. 17:05

2 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Leiðrétting:

Það eru allt of margir ríkisstarfsmenn að vinna við eitthvað sem engu góðu skilar. Ef þeir starfsmenn yrðu settir í verkefni sem eru gagnleg fyrir land og þjóð væri hvergi betra að lifa en á Íslandi.

Guðmundur Ásgeirsson, 19.12.2018 kl. 22:42

3 Smámynd: Ásgrímur Hartmannsson

Ég held núna séu 30% af vinnandi fólk að þykjast vinna fyrir ríkið.  Fólk sem er ekki í framleiðandi störfum.

70% af vinnuhæfu fólki er í alvöru vinnu við að halda þeim uppi.

Það þarf svo mikið að laga þetta, en fólk sjálft virðist ekki sjá þetta.  Þegar ég bendi á þetta móðgast annar hver maður.

Kannski ekki skrítið, þar sem svo margir eru að "vinna" fyrir ríkið.

Ásgrímur Hartmannsson, 20.12.2018 kl. 05:25

4 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Hvaða hvaða. Það eru nú ekki allir ríkisstarfsmenn að naga blýanta alla daga. Sumir þeirra sinna störfum sem framleiða aukna velferð og hagsæld, svo sem heilbrigðisgeirinn, menntakerfið o.fl.

En vissulega er líka heilmikil "fita" sem mætti skera af.

Guðmundur Ásgeirsson, 20.12.2018 kl. 15:54

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband