Þarf að vera ferkantaðri

Annars vinnur Suzuki imni.

Q: "Full­trú­ar bresku bílsmiðjunn­ar segja að við hönn­un­ina hafi verið gengið út frá ör­yggi allr­ar fjöl­skyld­unn­ar. Hann sé smíðaður fyr­ir for­vitna og æv­in­týra­fólk."

Er ekki viss um að fjölskidumenn séu í svona hugleiðingum.

Q: "Hann sýn­ist harðnagli...

...en er það ekki?

Q: "... og er það en samt hannaður til að vera spennu­gjafi."

Svo það er möguleiki á að nota hann sem varaaflstöð fyrir sumarbústaðinn, eða til að hlaða Nissan Leaf?

Q: "Def­end­er býður upp á sveigj­an­leika í af­köst­um..."

Á mínum yngri árum var það kallað "gírkassi."

Q: "... og má laga að kröf­um hvers og eins."

Þetta er hvorki sprtbíll né borgarbíll.  Svo, nei, þa er ekki hægt.

Q: "Land rover Def­end­er bygg­ir á yfir 70 ára reynslu og nýt­ur sér­stöðu meðal land­könnuða, líkn­ar­fé­laga og æv­in­týra­fólks um heim all­an."

Sérstöðu?  Hvernig?  Fyrir hvað?

Q: "Um síðir bæt­ast við tvinnút­gáf­ur og þar á meðal ten­gilt­vinnút­gáfa..."

Hver þarf ekki auka 250 kíló þegar hann er í torfærum?

Q: "...ým­ist með bens­ín eða dísil­vél í afl­rás­inni."

Já, það verður önnur vél inni í drifkerfinu.

Q: "Arðfarm­ur verður allt að 900 kíló..."

Hve mikið af óarðbærum farmi kemst fyrir?

Q: "... óhætt er að senda hann yfir allt að 90 sentí­metra djúpt vatn."

Þú gerir engar slíkar hundakúnstir á PHEV útgæafunni.


mbl.is Nýr Defender fram á sjónarsviðið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ómar Ragnarsson

Krafa nútímans er að loftmótstaða sé minni. Of ferkantað útlit vinnur þvert gegn slíku, og enda þótt ég sé hrifinn af bættum jeppaeiginleikum og almennum eiginleikum hins nýja Suzuki Jimny sést af eyðslutölum og hámarkshraða, að bíllinn er með afleita loftmótstöðu, líklega í kringum 0,55 cx. 

Enda er verið í alveg óþörfum eltingarleik við að hafa hann sem svipaðasta Jeep Wrangler í útliti. 

Mér líst því skár á nýja Defenderinn. 

Ómar Ragnarsson, 16.9.2019 kl. 23:11

2 Smámynd: Ásgrímur Hartmannsson

Jimni er léttari, og  eyðir fyrirsjáanlega minna bara þess vegna.
Og mun verða áreiðanlegri alltaf vegna þess að hann er tæknilega einfaldari.
Að hann er ferkantaður breytir litlu, enginn er að fara á Nurburgring eða Átóbaninn á þessu hvort eð er.  Eða vill slíkt.
Það er eitthvað sem LandRover verður hugsanlega notaður í.

Ásgrímur Hartmannsson, 17.9.2019 kl. 21:15

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband