Rambo 5

Rambó á pickup trukk með hestakerru aftaní.

Hann á engin börn sjálfur, en hefur tekið að sér einhverja stelpu, sem vill ekkert fara í Vindáshlíð, heldur til Mexíkó... í eitthvert fátækrahverfið þar.

Rambó kemst ekki í sund í þessari ræmu, þó hann hafi oft skroppið einn í sund... en þá oftast vegna þess að menn með ósamrýmanlegar pólitískar skoðanir sökktu undan honum bátnum.

Í staðinn hefur hann ofanaf fyrir sæér með því að gera göng.  Sem eru svo náttúrlega öll skemmd fyrir honum.  Eins og allt annað.

Ansi tel ég hæpið að þetta sé lífið sem hann langar í.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband