Bara spurning um tíma hvenær þetta verður hér líka:

Bændur fúlir vegna þess að ríkið kennir þeim um köfnunarefni í andrúmsloftinu

Því eins og allir vita þá veldur köfnunarefni allskyns bráðdrepandi veðrabreytingum, eilífu sumri, ísbjörnum og jafnvel mörgæsum.

Þeir eru að reyna að draga úr köfnunarefni í andrúmsloftinu þarna í Niðurlöndum.  Ja hérna...  Ég get engu við þetta bætt.  Brandarinn er fullskapaður.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðmundur Jónsson

Bændurnir menga víst líka sjóinn með vatninu sem þeir vökva með.

Guðmundur Jónsson, 16.10.2019 kl. 20:59

2 Smámynd: Ásgrímur Hartmannsson

Mér verður hugsað til ríkis-útsendara sem kom einhverntíma hingað frá Reykjavík.

"Við þurfum að taka salt-kassana" sagði hann, "því salt er svo mengandi.  Þið megið ekki lengur strá því á vegina til að bræða snjó, því þá berst það í hafið."

Þá spurði einn í hópnum: "veist þú hvernig salt er unnið?"

Ríkis guttinn hristi hausinn.  Hann sá bara að fólk var að horfa á hann skringilega.

"Það er unnið með því að þurrka sjó."

Og þá hló fólk.

Ásgrímur Hartmannsson, 17.10.2019 kl. 16:21

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband