Af MBL:

Samkvæmt LeAnn Rhymes:

Svo ég vitni í hana óbeint: ""Byss­ur hafa meiri rétt en kon­ur í Banda­ríkj­un­um í dag," seg­ir banda­ríska sveita­söng­kon­an Le­Ann Ri­mes."

Í hvaða fylki/fylkjum má kvenfólk ekki sjást úti á götu?  Hver eru viðurlögin við því ef þú leiðir eina út fyrir hússins dyr?

Er það í alvöru svo að konur verði að ferðast í þartilgerðri læstri hirzlu í farangurshólfi flugvéla?

Má hver maður eiga fleiri en eina í mjög mörgum fylkjum?

Hvað þarf að fylla út mörg eyðublöð til þess að fá eina?

Í hve mörgum fylkjum þarftu að framvísa leyfi ef lögreglan kemur að þér með konu?

Getur 3 stafa stofnun gert konuna þína upptæka ef einhver breytir lögum?

Lendir þú í miklum vandræðum ef konan eignast fleira en eitt barn í einu?

Er í lagi að kona sé hávaxnari eða á einhvern hátt annan öðruvísi en konur voru AD 1776? Þær gætu til dæmis verið með ógnvekjandi litað hár eða hringa einhverstaðar sem þótti ekki til siðs þá.

Bara fáeinar spurningar sem koma upp í hugann.  Lögfróðir kanar geta örugglega bætt einhverjum við.  Þeir þurfa þess ekki, þetta er alveg nóg.

MBL, ekki gagnrýnir á neitt sem þeir senda frá sér.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband