Í gær vissi ég ekki:

að lögreglan hefði óeirðagengi.

Ég bjóst ekki við því, skiljanlega kannski, af því ég man ekki eftir neinum óeirðum.

Amma man eftir óeirðum.  Hún sá það.  Ég hef séð af því vídjó.  Þá voru einhverjir menn að mnnhöggvast niðri á austurvelli, sem endaði með því að menn með hvíta hata fóru að emja alla.  Svo komu menn með svarta hata og skutu táragasi.

Síðan þá: ekkert.

Og nú?  Ekkert ennþá.  Það er helst að viðbrögðin við því að óeirðagengið mæti séu óeirðir.  Sem er svona svipað eins og að vera með brunalið til að kveikja í svo það hafi eitthvað að starfa. 


mbl.is Eggjakast og nasistabúningar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Afhverju emjuðu gaurarnir með hvítu hattana?

Helgi (IP-tala skráð) 23.4.2008 kl. 17:40

2 Smámynd: Ásgrímur Hartmannsson

Þeir voru svangir?

Ásgrímur Hartmannsson, 24.4.2008 kl. 23:33

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband