Ég skal segja ykkur hvað þessi fáni þýðir:

Hann þýðir að þeir, þessir suðurríkjamenn, neita að horfast í augu við að þeir töpuðu stríðinu, fyrir 150 árum.

The south will rise again, segja þeir.

Ekki án þrælanna, segi ég.

Glætan að þeir fái þá aftur.


mbl.is „Takið fánann niður“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Meðallaun hjúkrunarkvenna eru 635.697

Segir hér: http://www.fjarmalaraduneyti.is/media/Starfsmannamal/FIH-ML-1Q-2015.pdf

Sem þýðir að þær eru rukkaðar um 39,74% tekjuskatt, sem gerir útborgað: 383.325.

Hækki þær um 20%, þá hækka þær í 762.836, sem gerir 459.990 eftir skatt, eða raunhækkun uppá 76.665 kr.

Hvernig væri í staðinn að lækka bara skattprósentuna niður í 25%?  Þá fengju þessar hjúkkur strax 476.773 í vasann, án þess að hækka í launum (fyrir skatt.)

Ef það yrði gert á línuna yrði mikill uppgangur hér.

Það er of góð hugmynd til að komast í framkvæmd.  Of góð til að komast til tals einu sinni, vegna þess að "það er ekki gott fyrir þá lægst launuðu," er mér sagt.  Það er mér sagt, á hverjum degi, og mikið í lagt, að þessir blessuðu lægst launuðu hafi það betra eftir því sem þeim er gert erfiðara að eiga fyrir útgjöldum.

Ekki er mér fulljóst hvernig það virkar.


mbl.is Boðið 20% launahækkun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Það er ekkert endalaust hægt að kenna einhverjum bönkum um allt

Skoðum aðeins söguna - hún útskýrir oft sitthvað.

Við þurfum ekki að skoða aftur til ottómanatímans.  Það er of langt.  Hlutir geta lagast á svo löngum tíma.  Skoðum innan mögulegs líftíma manna:

Eftir WW2 byrjaði borgarastríð sem orsakaði mikið tjón og þá komst til valda *eitthvað* sem var í sífelldum byltingum og veseni þar til einhverntíma eftir 1990.

Hljómar eins og góður staður til að gera heilbrigða hluti.

Spánverjar voru með nokkuð stabíla herforingjastjórn, og gengur þess vegna aðeins betur.  Svipað gildir um Ítali.  (ítalir voru ekki með herforingjastjórn, en í staðinn fengu þeir hryðjuverkamenn og mafíósa.  Sem er það sama, nema minna í svifum.)

Þetta er alltaf eins: bylting, svo herforingjastjórn, svo viðloðandi fátækt.  Grikkir fengu bara mjög margar byltingar, og náðu sér aldrei.


mbl.is Bankarnir eru akkilesarhæll Grikkja
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 21. júní 2015

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband