Ég hef grun um hvernig þetta endar:

Öll evrópa fer á hausinn í rólegheitunum á næstu 10 árum.

Kjósendur kalla yfir sig kommúnista.  Það veldur langvarandi kreppu næstu 50 árin.

Kína breiðir úr sér, og sér tækifæri til að láta framleiða ódýrt skran í Evrópu.

... nema...

Kannski ákveða þjóðverjar að þeir vilji ekki lengur taka þátt í að borga skuldir annarra.  Kannski ákveða kjósendur allra landa að þeir vilji ekki borga skuldir annarra.  Þá fer bara allt að helmingur evrópu á hausinn, og þetta fer að ganga meira eðlilega.

Ekki fullkomlega eðlilega samt - ég er ekki slíkur draumóramaður.


mbl.is Lofa stöðugleika og trausti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Anna Sigríður Guðmundsdóttir

Það verður að núlla fjármálakerfi heimsins, og taka raunverulegt siðferði í notkun, og slökkva á upplognu ræningja"siðferði" bankanna, sem stjórna heiminum í dag.

Verkefni þjóðarleiðtoganna er stórt.

M.b.kv. 

Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 15.10.2011 kl. 23:47

2 Smámynd: Ingibjörg Guðrún Magnúsdóttir

Algjörlega sammála henni Önnu Sigríði hérna. Það verður að koma ný peningastefna hérna ásamt nýju hagkerfi.

Það á að núllstilla allt kerfið og byrja upp á ný, við eigum að leyfa okkur að hafa lægri vexti á húsnæðislánum en öðrum lánum, við eigum að hætta þessu verðtryggingar og vísitölubulli á lánaformið en setja verðtryggingu aftur á öll laun í Landinu.

Við eigum að leyfa okkur að eignast hlutina hvort sem það er hús eða bíll. Eins og þetta er í dag þá er alveg sama hvað fasteign eða bíll verða gömul þau virðast halda hæðsta verðlagi út í hið óendarlega eins það sé alltaf um nýja hluti að ræða...

Ingibjörg Guðrún Magnúsdóttir, 16.10.2011 kl. 08:19

3 Smámynd: Ásgrímur Hartmannsson

Þjóðarleiðtogarnir ráða ekkert við þetta - reyndar eru þeir hluti af vandamálinu, flætir í allt heila hafaríið.

Og þetta mun núllstillast.  Á versta veg.

Ásgrímur Hartmannsson, 17.10.2011 kl. 17:46

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband