Breytið þá reglunum fyrir öll fyrirtækin

Mest vit í því, og ég fæ ekki betur séð en Costco vilji standa fyrir meirihátta bótum hérna.

"von­andi leiði þetta til þess að liðkað verði fyr­ir meira frelsi í viðskipt­um"

Það væri þá tími til kominn.  Fyrir alla þá, en ekki bara einhverja fáeina útvalda, að fasistasið.  (Fasisti er ekki blótsyrði.)

"Hún vill að byrjað verði á því að skoða hvort að hægt sé að leyfa sölu lausa­sölu­lyfja sem ekki eru lyf­seðilskyld utan apó­teka." 

Af hverju er það ekki búið fyrir löngu?

"Unn­ur seg­ir inn­flutn­ing á frosnu kjöti aft­ur á móti snú­ast um mun stærri spurn­ing­ar og vera erfiðasta málið af þess­um þrem­ur.

Kjöt frá USA inniheldur að öllum líkindum nákvæmlega það sem stendur á pakkningunum, og ekki örveru meir.

Nautakjötið inniheldur ekki snefil af ösnum, hestum, mafíu-informöntum eða rottum, eins og í evrópu, og það mun vissulega innhalda "kjöt," en ekki dularfullt uppfyllingarefni eins og á Íslandi.

Svo, endilega, flytjum inn bandarískt kjöt. 


mbl.is Lögum ekki breytt fyrir eitt fyrirtæki
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband