Svona verða úthverfi til

Þar sem enginn hefur efni á að búa í miðbænum er nauðsyn að byggja þar sem lóðaverð er lægra.

Ég sé einnig að þeir hafa fundið eitt af fáum einbýlishúsum í Detroit sem er ekki búið að brenna til grunna.  Vel af sér vikið, það.

Svipað húsnæðisverð þar og hér í eyjum þá, en hér stendur allt og fellur með hvernig fiskast.

Öllum er sama meðan ekkert veiðist, en um leið og eitthvað fiskast kemur öfundin upp.

Mig grunar að á flestum þessum stöðum séu menn ekki að flytja inn nema skifta á húsnæði sem þeir eiga fyrir.

Annað sem vert er að hafa í huga er, að í útlöndum eru vextir (alltaf óverðtryggðir) frá 0.2% (Japan) uppí *allt að* 3%.

Það er öllu auðveldara fyrir meðal-manninn að punga út fyrir 3 milljón króna kústaskáp á þannig kjörum.

En... þetta reynist samt of dýrt.  Sem veldur því að miðborg London er tóm.  Þar búa ansi fáir.  Og allt einhverjir sem hafa fengið húsnæðið í arf, eða eru *ógeðslega ríkir.*


mbl.is Hvernig hús fæst fyrir 40 milljónir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Tryggvi Helgason

Í Detroit voru einbýlishús auglýst til sölu á 1 bandarískan dal, hvert. ($ 1,00)

Enginn kaupandi fannst  !

Tryggvi Helgason, 17.8.2015 kl. 14:30

2 Smámynd: Ásgrímur Hartmannsson

Auðvitað ekki.  Það er Detroit.  Þangað hef ég komið.  Það er mjög eyðilegur staður og óvistlegur.

Ásgrímur Hartmannsson, 19.8.2015 kl. 19:58

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband