7.1.2016 | 21:43
Hver vill selja þá til baka?
Svindl bílarnir eru kraftmeiri og eyða minna! Eru semsagt betri en hinir.
Þarf að kaupa til baka 115.000 bíla | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
7.1.2016 | 21:32
Þetta gæti átt sér eðlilegar skýringar
BMW er ekki beint sjaldgæf sjón í Bretlandi. Vinsæll bíll. Og líklegri til þess að tolla saman en einhver Vauxhall.
VW Golf er aftur dularfyllra fyrirbæri. Fólk hefur eitthvert undarlegt dálæti á þeim bílum, sem ég ekki skil.
Eins með Benz C. það eru nú meiri helvítis balarnir.
Ég tek líka eftir að þetta eru mest voða litlir bílar. Það er vegna þess að það er erfitt að fá stæði í UK.
Vinsælustu bílarnir á netinu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
6.1.2016 | 19:53
Þarf að beita NK einhverjum refsiaðgerðum?
Þetta er nú þegar kommúnistaríki sem framleiðir ekki nógu mikinn mat til að brauðfæða liðið sem framleiðir matinn, og þarf þess vegna að reiða sig á matargjafir frá USA & Kína.
Hvað ætla þeir þá að gera? Hætta að gefa þeim mat?
Það væri ahugavert, prófið það endilega.
Gætu hert refsiaðgerðirnar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
5.1.2016 | 03:56
Bara táknræn aðgerð sem hefur ekki þau áhrif sem hann segir
"Obama sagði tilskipanir sínar ekki muna koma í veg fyrir allar fjöldaskotárásir eða ofbeldisglæpi en að í þeim felist möguleikar á að bjarga mannslífum."
Mín spá:
Gerir ekkert af eða á til að fá ameríska bófa ofan af því að skjóta aðra ameríska bófa.
Gerir ekkert til þess að fá amerískar löggur til að skjóta svertingja.
Gerir ekkert til þess að fækka ofbeldisglæpum af neinu tagi.
Fækkar ekki sjálfsmoðrum (meira en helmingurinn af þessum dauðsföllum sem alltaf er verið að vitna í.)
Það sem hinsvegar gerist:
Fólk með greindarvísitölu a.m.k. einu ataðalfráviki neðan við meðaltal finnst hann hafa gert eitthvað. Fólki með greindarvísitölu tveimur ataðalfrávikum neðan við meðaltal finnst þetta þ0rf, gagnleg og góð aðgerð.
(Til gamans væri sniðugt að tína til hve marga Obama er búinn að láta drepa frá því hann komst til valda - allt frá Lýbíu til Íraks.)
Herðir reglur um skotvopnaeign | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
4.1.2016 | 08:03
Gott nafn á skopmyndateiknara
"Listamaðurinn Laurent Sourisseau, [...] sem gengur undir nafninu Riss,"
... ætli hann viti?
Minnast árásanna í sérstakri útgáfu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
4.1.2016 | 08:01
Rétt hjá manninum
Það er miklu meiri peningur í því fyrir okkur íslendinga að vinna úr álinu hérna. Ég veit ekki af hverju við höfum allan þennan tíma verið að ströggla við það viljandi að vera bara einhver hrávöruframleiðandi.
Vilja álið beint úr álveri | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
3.1.2016 | 07:57
Okkar eigin Trump
Svolítið undarlegur maður, á sinn eigin pening, segir það sem honum dettur í hug. Semsagt, hefur vissa kosti.
En verður hann eitthvað frekar kosinn núna?
Ástþór ætlar í forsetaframboð | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
3.1.2016 | 07:52
Það var merkilegt
"Í tengslum við áramótafögnuði voru handteknir 622 manns eða tvöfalt fleiri en í fyrra og voru 368 hnepptir í gæsluvarðhald, sem er 46,6% aukning."
... vegna þess að:
"Yfir hundrað þúsund her- og lögreglumenn héldu uppi eftirliti á götum úti í París og stærri borgum og bæjum um áramótin."
Af Wiki:
France has two national police forces:
- The Police Nationale, [...] its strength is roughly 150 000.[1]
- The Gendarmerie Nationale is part of the French armed forces. [...] Today there are about 105 000 gendarmes in France.
Total: meira en 255.000 manns. Í öllu landinu.
Hér: http://data.worldbank.org/indicator/SP.RUR.TOTL.ZS stnedur að ~21% frakka búi á landsbyggðinni.
Við getum sennilega gert ráð fyrir að jafn margar löggur séu per capita þar og í borgum & bæjum.
Sem þýðir, að 79% þessara 255K manns eru í París og stærri borgum og bæjum að öllu jöfnu, eða ~201.000 manns.
Sem sagt, yfir 100 þúsund her & lögreglumenn. Eða ekkert fleiri en venjulega.
Skemmtilegt, það.
14,5% færri bílabrennur | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
1.1.2016 | 05:14
Vð getum ekki kosið Katrínu
"...frelsi til þess að fá að þroska hæfileika sína og lifa eins farsælu lífi og mögulegt sé."
Hún er kommúnisti. Það er ekkert frelsi til þess að þroska neina hæfileika undir því kerfi. Eða frelsi til nokkurs.
Nei.
En hvert má þá leita? Núverandi stjórn leitar til krata... það er fasismi, með öðru nafni. Ekki veit ég af hverju þeir steðja þangað, það er ekki nema kannski 25% fylgi að fá þar. Mest.
"Rós með einhverju öðru nafni, er það ekki líka rós?" spurði einhver, sem mér skilst sé nafnkunnur.
"Er munur á kúk og skít?" spurði annar, hvers nafn er gleymt.
Já.
Valið er vont, eða verra.
Jöfnuður forsenda raunverulegs frelsis | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |