Eru Eyfirðingar svo glæpahneigðir að það þurfi fleiri?

Eða eru þeir kannski svo miklir bjánar að fleiri þarf til þess að passa uppá að þeir fari sér ekki að voða?

Eða er þetta bara vantrú annarra landsmanna á gáfnafari og góðmennsku Eyfirðinga?

Hvað veldur ef svo er?


mbl.is Fjórir vakta 20.000
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Missir í þeim

*Aðal­fund­ur Hægri grænna samþykkti ein­róma á aðal­fundi sín­um í dag að leggja flokk­inn niður og ganga til liðs við ný­stofnaðan stjórn­mála­flokk, Íslensku Þjóðfylk­ing­una.

Gátu þeir ekki valið aðeins minna krípí nafn á þennan flokk sinn?

*Í­Þ vill m.a. standa vörð um sjálf­stæði Íslands, taka upp rík­is­dal og hafn­ar hug­mynd­inni um fjöl­menn­ingu á Íslandi.

Skifta út einni krónu fyrir aðra eins...

*Flokk­ur­inn vill enn­frem­ur Ísland úr Schengen,

Ágæt hugmynd.  Nema við viljum að Grikkir ráði því hverjir komast hingað.

*stór­efla lög­gæslu,

Þeir eru ekki að skora nein stig fyrir þá hugmynd hérna megin.  Til hvers?  Hverju á það að skila?

*al­menna skulda­leiðrétt­ingu

Þætti gaman að sjá áætlunina.

*en er al­farið á móti því að mosk­ur verði reist­ar á Íslandi.

Það er vit í því.

*Það eru marg­ir ekk­ert ánægðir með hvernig fjár­mála­kerfið hef­ur yf­ir­tekið þjóðfé­lagið.

En það kaus fólk.  Vísvitandi.  Fólk vill ekki sjá frjáls viðskifti.

*Það eru marg­ir eru held­ur ekki ánægðir með það hvernig það virðast vera lausa­tök á t.d. þess­um flótta­manna­mál­um.

No shit?  Ég hef ennþá ekki hitt neinn sem skilur hvað ríkið er að pæla.  Hef heyrt af fólki sem vill hafa þetta svona, en aldrei hitt það.

*Við höf­um mikl­ar áhyggj­ur af því að það verði ann­ar skell­ur hérna,“ seg­ir Helgi... 

Ég er hissa á að hann skuli enn ekki hafa komið.

*Grunn­stefna flokks­ins er ein­stak­lings­frelsi, tak­mörk­un rík­is­af­skipta, gagn­sæ­an sjálf­bær­ann rík­is­rekst­ur (báknið BIRT), beint lýðræði, nátt­úru­vernd, friðsöm og hafta­laus milli­ríkja viðskipti.

Flest frekar nýir og framandi hlutir hér á landi.  Þeir keppa við pírata í beina lýðræðinu, alla hina flokkana í náttúruvernd.  Allt hitt eru nývirki.

*Mál­efni ör­yrkja og aldraða eru ætíð í fyr­ir­rúmi og stefnt skal að út­rým­ingu fá­tækt­ar á Íslandi,“ seg­ir í grunn­stefn­unni.

Þetta held ég að sé í grunnstefnu allra.  Í praxís er stefna allra að stuðla að örorku og viðhalda fátækt.  Viljandi eða fyrir heimsku sakir, veit ekki hvort.

*Þá vill flokk­ur­inn stór­efla lög­gæslu, land­helg­is - og toll­gæslu og auka þátt­töku Íslands í eig­in vörn­um.

Þetta er það sem ég set mest fyrir mig.

Fyrir mæer mega þeir draga enn meir úr löggæzlu, leggja tollinn niður og senda alla í landhelgisgæzluna, sem er alveg í svelti núna.

*Flokk­ur­inn vill enn­frem­ur upp­töku nýrr­ar mynt­ar (rík­is­dal) sem tengd verði Banda­ríkja­dal og af­nám verðtrygg­ing­ar.

Þá þyrfti hagstjórnin að vera góð hérna.  Sem hefur ekki verið raunin nokkurntíma. 

*Einnig vill flokk­ur­inn að regl­ur um fjár­mála­fyr­ir­tæki verið stór­hert­ar

Harðar reglur, eða góðar?

Harka eða gæði, ekki það sama.

*ÍÞ er hins veg­ar al­farið á móti því að mosk­ur verði reist­ar á Íslandi. Flokk­ur­inn vill að bann verði lagt við búrk­um, umsk­urði kvenna af trú­ar­leg­um ástæðum og skól­um íslam­ista á Íslandi. Þá hafn­ar flokk­ur­inn hug­mynd­inni um fjöl­menn­ingu á Íslandi en styður öfl­ug­ar aðgerðir til aðlög­un­ar þeirra sem setj­ast hér að.

Það mætti halda að þeir hafi verið að fylgjast með atburðum úti í heimi.


mbl.is Hægri grænir heyra sögunni til
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sama dellan alltaf

*Maður­inn sem myrti þrjár mann­eskj­ur og særði sautján í skotárás í Kans­as í gær hafði skömmu áður verið dæmd­ur í nálg­un­ar­bann.

Það virkaði greinilega fullkomlega.

*Árás­inni lauk þegar lög­regl­an skaut bys­su­m­ann­inn til bana.

Þurftu þeir að bíða eftir að lögreglan reddaði þessu?  Það er alltaf verið að segja mér að allir bandaríkjamenn hlaupi um vopnaðir byssum.  Getur verið að það sé lygi?

*Hún var gerð inn­an við viku eft­ir að leigu­bíl­stjóri í Kalamazoo-sýslu í Michigan skaut sex manns til bana, að því er virðist handa­hófs­kennt.

Enginn skaut á móti þá heldur.  Hvar eru allar þessar byssur eiginlega geymdar?

*Hann var með langa saka­skrá, þar á meðal  fyr­ir ólög­lega byssu­eign.

Hefðu lög stöðvað hann?  Svona jafn mikið og lög Bítlanna, grunar mig.

*Um 30 þúsund manns deyja á ári hverju af völd­um byssu­of­beld­is í Banda­ríkj­un­um.

Rrrrriiiight.  Heimildir takk.  Flettu þessu upp hjá CDC eða FBI, svona til dæmis.


mbl.is Hafði verið dæmdur í nálgunarbann
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Tengd frétt?

http://www.mbl.is/frettir/erlent/2016/02/26/japonum_faekkar_um_eina_milljon/

... maður spyr sig.


mbl.is Gafst upp á endalausu skrifræði í Japan
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bogi er vopn

Og íþróttatæki.

Sama er svosem hægt að segja um haglabyssur, skammbyssur, og þegar einhver finnur upp á að stunda það sem íþrótt: sprengjuvörpur.

Sprengjuvörpuskotfini: íþrótt sem ég væri til í að sjá.  (Hef engan vegin efni á að stunda hana, en, ekki formúlu 1 heldur.)


mbl.is Vill endurskoðun vopnalaga
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Mannlýsingar eru hverfandi hæfileiki

"Föl­leit­ur maður um 180 cm á hæð, dökklædd­ur og með svarta húfu og svarta hanska. Tal­inn vera á aldr­in­um 35-45 ára."

Ef hann tekur af sér húfuna, fer úr hönskunum og klæðir sig í litrík föt, þá þekkist hann aldrei.

Ég hef lent í því nokkrum sinnum að þurfa að komast að því hver einhver er, og þá gríp ég til þess að lýsa viðkomandi.

Ég segi: hann er sirka svona hár, og svona umfangsmikill, og með þannig hár og svona og svona andlit.

Kannski er maðurinn perulaga, hjólbeinóttur, með annan handlegginn áberandi lengri en hinn, höfuðið í laginu eins og kókoshneta, með grænan hanakamb, hátt og glansandi enni, óvenju langt á milli augnanna, vígtennur eins og rostungur og eyru eins og radarskermar.

Nei, fólk kannast ekki vip lýsinguna, aldrei séð manninn.

Það spyr hverra manna hann sé.  Ekki veit ég það.

Þá segi ég hvar hann vinnur, og hvar ég hitti hann oftast.

Nú, er þetta sonur föður síns og móður sinnar? spyr fólk þá.

Ekki get ég sagt til um það, en svo kemur á daginn að jú, þetta er einmitt sá náungi.  Svona líka einkennilega útlýtandi maður.

Af hverju sagðir þú það ekki strax?  Spyr fólk.  Hittir þennan mann á hverjum degi, talar við hann oft, segir fólk.

Vegna þess að ég hélt að hann þekktist á útlitinu, segi ég.


mbl.is Biðja fólk um að halda ró sinni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hið "opinbera" í hnotskurn:

Merkilegat að þetta séu ekki aðgengilegri upplýsingar en svo, að það þurfi að biðja um þetta sérstaklega, og þá hvert ráðuneyti fyrir sig.


mbl.is Spyr um embættismenn og aldur þeirra
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Grunsamlegur og ótrúverðugur frjálshyggjutónn í Helga þarna

Af hverju er hann á móti því að bændum sé haldið á sósíalnum?  Svona eru þeir í raun ríkisfyrirtæki.


mbl.is Illa farið með stórkostlegt tækifæri
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvaða eurocentrismi er þetta eiginlega?

Asíubúar eru að vopnvæðast lang-hraðast:

http://www.bbc.com/news/world-asia-35628477

Segir BBC

_88383929_chart


mbl.is Vopnakapphlaup hafið í Evrópu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Örugglega allt byggt á misskilningi

Hann átti bara að skjótast eftir fólki.  Ekki skjóta það.  Úps...

Hefði geta verið skrautlegt ef hann hefði verið beðinn um að skutlast...


mbl.is Morðinginn var bílstjóri hjá Uber
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband