Bandaríkjamenn ganga ekki um vopnaðir

Augljóslega ekki.

Og eins og fyrri daginn, þá virðist vopnuð lögregla ekki geta teleportast á vetvang, eins og svo margir halda fram.

Hvað var fólk eiginlega lengi að berjast við þennan gaur áður en lögreglan mætti.  Af frétt BBC má ráða að það hafi verið sæmilegur tími.


mbl.is Réðst á gesti með sveðju
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

2016 hatar tónlistamenn,

Þeir hafa verið að hrynja niður undanfarnar vikur.

Ekki allir þeir frægustu, og margir komnir á aldur, en merkilega margir.

Það eru ansi margir tónlistarmenn í heiminum, og árin milli 1960-1990 voru mikil gósentíð fyrir þann hóp.  Svo þetta er ekkert tölfræðilega afbrigðilegt... ennþá. 


mbl.is Breskir tónlistarmenn létust í bílslysi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvað er langt upp í þetta Óson núna?

Wiki segir mér að það eigi að vera í 20-30 km hæð.  Hve mikið hefur það lækkað?


mbl.is Óstöðug snjóalög og óvenjulágt óson
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Við vitum þetta allt

En sama hvað, alltaf fjölgar stofnunum, reglugerðirnar verða fleiri og flóknari, gjöldin fleiri og hærri, fleiri og fleiri viðskiftaþvinganir á hendur hinum og þessum eins og af handahófi...

Haldiði að þetta breytist?

Hafið í huga - hér var við völd lið sem var alltaf (og er enn) að agnúast útí það hvernig fé og eignir lenda alltaf á færri og færri höndum.  Þeir *orsökuðu* það beinlínis sjálfir.  Og nöldruðu svo meira yfir því.

Yfirvöld eru ekkert sérlega gáfað fólk, grunar mig oft.


mbl.is Ótrúlegt að halda úti 182 stofnunum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þeir þurfa þetta eins og augu á innanverðum þörmunum.

1: Hefði þetta breytt einhverju?  Hefðu færri verið ráðnir af dögum hér um daginn?

Nei.  Þetta er eftirá.

2: Hvað þykjast þeir ætla að gera í 4 mánuði?

Hef ekki grænan.


mbl.is „Neyðarástand“ í stjórnarskrána
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

... og þessi bjargar alveg deginum.

Honum til varnar, þá var þetta víst aligator, sem er ekki alveg jafn mannýg skepna og krókódíll.


mbl.is Kastaði krókódíl inn í bílalúgu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

En við þurfum svarta hagkerfið

Vegna þess að það sinnir þörf sem "hvíta hagkerfið" sinnir ekki, illa, eða er að klúðra á einn eða annan hátt.

Því lélegra sem opinbera kerfið er, því fullkomnara verður svarta hagkerfið á móti. 


mbl.is Vill banna stóra seðla
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Stórmerkilegt mál

... en fregnir heldur loðnar:

20-30 manns "bara birtast," og fara að slást við... enginn segir.

Vegna þess að... ekki vitað.

Hvað segja menn?  Ætli þetta verði gleymt og grafið fyrir næstu helgi?


mbl.is Slógust með kylfum og hamri
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er örugglega ágætis trog, og allt það...

Mörg­um þótti full­djarft [...] þegar hönn­un­art­eymi Lex­us ákvað að sækja í sam­starf og inn­blást­ur til tón­list­ar­manns­ins Will.I.Am við hönn­un á minni sportjepp­an­um frá Lex­us, NX 300h.

Því ekki?  Lexus mega ekki við því að vera leiðinlegri, þeir verða að préofa eitthvað.

En: Sport "jeppi?"  Hátt & lágt?  Læst?  Ef ekki, þá er það ekki jeppi.  Hvað' er svo hátt undir þetta?

Eins og við var að bú­ast varð afrakst­ur­inn á marg­an hátt af­ger­andi vend­ing frá fyrri jeppa­mód­el­um Lex­us,

HAHAHAHA!  Jeppi...

Man vel hvernig 2014 RX var.  Það var *fólksbíll* fyrir mömmu þína.  GX & LX eru jeppar.  Læst drif, sjáðu til.

...sem flest höfðu til að bera hóf­leg­ar, lág­stemmd­ar og nán­ast hlut­laus­ar lín­ur...

Líta út eins og Landcruiser.  Vegna þess að þeir eru Landcruiser.  Gamli RX bíllin lítur svo aftur út eins og mörkeppur, sem þykir fallegt form þarna úti.

... Í út­liti eld­ast Lex­us-jepp­arn­ir ágæt­lega, einkum 2. kyn­slóðin,

Þeir stinga ekki beint í augu, en þú finnur þá heldur ekkert á stæði.

...en mörg­um þótti þó þriðja og næst­nýj­asta kyn­slóðin helst til straum­línu­löguð.

Þeir eru næstum alveg eins.  Svone eins og Ford Fairmont og Mercury Zephyr eru næstum alveg eins.

Skemmst er frá því að segja að hún er sú fal­leg­asta og best heppnaða hingað til.

Smekksatriði.  Finnurðu hann á stæði, já eða nei?  Það er aðal-atriðið.

Mun­ar þar ekki minnst um að lín­urn­ar hafa orðið skarp­ari og svip­ur­inn sterk­ari. RX ligg­ur ekki leng­ur í lág­inni held­ur hrein­lega sog­ar að sér at­hygl­ina.

Man ekki eftir að hafa séð einn.

Og hann fíl­ar það.

Og hann fer líka út á nóttini og sýgur úr vegfarendum blóð.

Meðal einkar vel heppnaðra nýj­unga má nefna upp­lýs­ing­ar sem varpað er neðst á framrúðuna fyr­ir öku­mann svo hann þurfi sem allra minnst að taka aug­un af veg­in­um í akstri.

Best er að trufla ökumenn með allskyns dóti á framrúðunni frekar.

Þar gef­ur að líta upp­lýs­ing­ar um hraða, vinnslu vél­ar (hleðsla/​hag­kvæmni/​keyrsla)

... ég trúi því ekki að óreyndu að eyðzlumælirinn í þessu sé réttur.

...og loks hraða bíls­ins.

Þú varst búinn að segja það hér á undan þar sem þú sagðir það áður.

Það get­ur nefni­lega býsna tíma­frekt spaug þegar píl­an á skján­um sem tákn­ar bíl­inn er sein að taka við sér og skil­grein­ing kerf­is­ins á „næstu beygju“ er á reiki.

Oftast nota ég kort, og vegvísa til hliðsjónar.  En það trix virkar eiginlega bara í útlöndum.

Innanlands hef ég verið að skoða kortið vel áður en ég legg af stað, og plottað leiðina eftir því.

Þá get­ur maður skyndi­lega verið kom­inn út á hraðbraut í ranga átt og eng­inn kost­ur að snúa við næstu 15 kíló­metr­ana.

Það hefur gerst.  En þá var ég heldur ekki með kort, og vissi ekkert hvar ég var eða hvert ég var að fara.

Öll mín ferðalög eru óvissuferðir.

Með rúm­lega 300 hestafla vél kem­ur sá mögu­leiki að slá vel í klár­inn, það má nokk­urn veg­inn bóka það.

... en hefur þetta aksturseiginleika til að geta notið þess?

NX bíllinn hafði þá.  Gamli RX bíllinn hafði þá ekki, var reyndar með talsvert verri aksturseiginleika en Honda CRV.  Sem er alveg ferlegt.

NX bíllinn er voða osom.  Eini skemmtilegi Lexusinn.  Ef þeir væru fáanlegir ofan af því að kalla hann jeppa...

Þó Lex­us RX 450h sé rösk­lega tvö tonn að þyngd...

Þyngri en minn bíll.

Frá vél­inni heyr­ist traust­vekj­andi urr ...

Það heyrist ekkert í mínum.  Vélarhljóðið er yfirgnæft af viftunni á lægstu stilingu.  Það er 18 ára gamall bíll.

...fág­un hef­ur alltaf verið aðal þess­ar­ar bíl­teg­und­ar ...

Þeir keppa við Benz.

... og eru að vinna.  Stórt.  Og Benz virðist ekki fatta það, eða af hverju.

...hinn nýi RX bæt­ist í hóp mód­ela frá Lex­us sem skarta meira ögr­andi út­liti en áður...

Það þurfti að gerast.

... ekki fór mikið fyr­ir hvæs­andi yf­ir­snún­ingi þegar lagt var í bratt­ar brekk­ur í Lissa­bon og ná­grenni þar sem bíll­inn var prófaður fyrr í mánuðinum.

Ah... hið fjalllenda og torfæra Lissabon.  Staður fyrir jeppasafarí, það.  *Sport* jeppasafarí, sko.

... eyðslan, rétt um 5 lítr­ar á hundraðið,

GPS, og ~350 KM innanbæjar, og segðu mér svo hvað hann eyðír, í alvöru.  En ekki í þessum fantasíuheimi þar sem allar leiðir eru undan halla, undan vindi og utanbæjar.


mbl.is Lexus RX í fullmótaðri mynd
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ef þú getur keyrt stærstu gerð af Transit...

...þá getur þú keyrt öllu.

Þeim gekk það misvel á Flytjanda, man ég.

Ein stelpa fékk bíl með háum toppi, og hún áttaði sig ekki á því, og keyrði á skýlið fyrir framan Bændahöllina - minnir mig, frekar en eitthvað annað hótel.

Gaurinn sem var að keyra bílinn sem ég fékk oftast, en á daginn, festi sinn í Hátúninu. Það rataði í fréttirnar.

Menn voru ekkert að vanda sig á þessum bílum, þó ég neyddist til þess.

Fékk bara einn bíl sem fyrsti gír virkaði í, svona til dæmis.  Bæði fyrsti og annar gír voru farnir úr öðrum, og það var sko kúnst að aka þeim bíl.

En maður býr að þessu.  Bílar eru ekkert svo stórir lengur.


mbl.is Karlar á hvítum sendibílum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband