16.8.2017 | 16:13
Kellingin hefur rétt fyrir sér, en á kolröngum forsendum
Q: "Að reyna að eyða þessum lífum í þeim tilgangi að skapa hin fullkomna kynþátt eða fullkomna land er bara það sama og nasistarnir gerðu í Þýskalandi. Þeir reyndu þetta og sjáum hvaða hörmulegu afleiðingar það hafði."
Nazistarnir tóku mannbótahyggjuna svolítið uppá sína arma, sumpart af praktískum ástæðum, sumpart vegna þess að það var lenska þá.
Og þeir voru mjög prógressívir í öllum sínum verkum og til í að hrynda allskyns nývirkjum í framkvæmd.
Það er hinsvegar ekkert einkenni þeirra, langt því frá. D. H. Lawrence var til dæmis mikill talsmaður mannbotahyggju, en enginn sérlegur talsmaður nazisma, á nokkurn hátt.
Hinsvegar höfum við afskaplega nazískt kerfi hér - nánast lið fyrir lið:
Hér er almenningi tryggð lágmarks framfærzla (7. We demand that the State shall make it its primary duty to provide a livelihood for its citizens.)
Allir eru í orði kveðnu jafnir fyrr lögum: (9. All citizens shall have equal rights and duties.)
Við viljum að stórfyrirtæki deili gróðanum: (14. We demand profit-sharing in large industrial enterprises.)
Og svo framvegis. Allt þetta tal hér um "blandað hagkerfi" og "íþróttir fyrir alla" (21. The State must ensure that the nation's health standards are raised by protecting mothers and infants, by prohibiting child labor, by promoting physical strength through legislation providing for compulsory gymnastics and sports, and by the extensive support of clubs engaged in the physical training of youth.) og allur annar "ríkið veit best" hugsunarháttur sem hér tröllnauðgar öllu.
Fáeinar fóstureiðingar gera engann að nazista. Það er efnahagskerfið sem segir til um hvort maður er slíkur eða ekki.
Palin líkir Íslendingum við nasista | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
15.8.2017 | 19:59
Létt verk það
Bara stoppa alla sem aka á eða undir löglegum hraða, eða skuggalega hægt á vinstri akrein hraðbrauta (eða stofnbrauta eins og sumir kalla það.)
Í 90% tilvika eru þeir í símanum.
Í hinum 10% eru það bara lélegir ökumenn.
Herða eftirlit með farsímanotkun við akstur | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
15.8.2017 | 16:30
Núna fyrst?
Hér, í mínu nánasat umhverfi, og reyndar allstaðar þar sem ég hef komið, hafa allar loftslagsbreytingar haft áhrif um leið, á sömu sekúndu og þær hafa orðið.
Loftlagsbreytingar farnar að hafa áhrif | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
14.8.2017 | 12:19
Búast þeir við ósonmengun?
Það væri alveg skiljanlegt, svosem, af öllum þessum rafmótorum.
Þjóðverjar vænta rafbílakvóta | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
1.8.2017 | 10:59
Indverjar nota fíla eins og traktora
Þeir eru vinnudýr, dráttarjálkar og slíkt. Margnota kvikyndi. Indverjinn er innanum þá alltaf.
Einu sinni á ári fá þeir kast, og verða illir. Svo er líka möguleiki að gefa þeim rangt fæði - það var gert viljandi í denn til þess að fá þá til að berjast.
Einn á dag, með það í huga, er ekkert mikið. Fíllinn er nánast meinlaus, miðað við hesta, til dæmis. (~2.7 dauðsföll á ári í keppnum (eventing) eingöngu, ekki stanslaus viðvera. Í Ástralíu ku vera 20 dauðsföll á ári af völdum hesta. http://theconversation.com/why-the-long-face-just-how-risky-is-horse-riding-58778 - sem þýðir að sambærileg tala fyrir indland væri 1075.)
Áhugavert, ef maður stúderar smá og reiknar út.
Fílar og tígrisdýr drepa einn á dag | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |