Fer eftir færi

"Al­menn­ir lög­reglu­menn búa aðeins yfir lít­illi kylfu og piparúða þegar kem­ur að átök­um"

Þessi frasi, *þegar kemur að* er svo slæmur stíll, að hann skemmir fyrir skilningi.  Þetta er úr *lélegri* ensku.

Ambrose Bierce hefði aldrei orðað neitt svona.

"Borið hef­ur á að al­menn­ir lög­reglu­menn þurfi að beita sér í mál­um þar sem þung­vopnaðir mis­gjörðamenn eiga í hlut."

Endilega segið frá. 

"jafn­vel bara al­menn slags­mál hérna í Reykja­vík,"

Er GAS!  GAS! gaurinn hættur?

" Það hef­ur ým­is­legt verið rætt í þessu sam­hengi, meðal ann­ars að þjálfa lög­reglu­menn í um­gengni og beit­ingu skot­vopna."

Reynzla breta & bandaríkjamanna í því hefur verið ... götótt.  Danir hafa líka reynzt miklir slúbbertar.  Allir aðrir... það reddast.

"Það er ekki inni í mynd­inni að fara að beita þyngri vopn­um sem vald­beit­ing­ar­tæki"

Ég gef því 10 ár.  Mest.

Ég treysti Íslensku vandstjórninni alveg nákvæmlega jafn vel og hún treystir mér. 


mbl.is Kylfur duga ekki gegn byssum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Það er magna hvað fólki sem tjáir sig hægt treystir löggunni minnst en hefur fæstar hugmyndir umhvernig betur mætti fara? Er ekki bara málið að reka lögguna eins og hún leggur sig, þar sem hún er greinlilega ekki traustsins virði og bara leyfa fólki almennt að sjá um þessi mál sjálft?

hallur (IP-tala skráð) 4.9.2014 kl. 23:56

2 identicon

"Kylfan virkar ekki nógu vel á andlega veika og fíkla" -Guðmund­ur Ingi Rún­ars­son, formaður Lög­reglu­fé­lags Reykja­vík­ur

Þarf að segja meira?

sveinn ólafsson (IP-tala skráð) 5.9.2014 kl. 11:30

3 Smámynd: Ásgrímur Hartmannsson

Hallur: þú misskilur.

Traust er gagnkvæmt. Ef einhver treystir þér ekki að fyrra bragði, spyrðu þig aldrei af hverju það er? Hvaða mann hefur þessi fyrir framan þig að geyma, fyrst hann ætlar þér þetta eða hitt að fyrra bragði?

Sveinn:

Ofbeldi er notað þegar búið er að klúðra hlutunum. Það er vissulega ákveðin lausn að skjóta bara alla geðsjúka og fíkla, en það væri vel hægt að umgangast þá á friðsamlegan hátt -

- en ég tala fyrir daufum eyrum þar, er það ekki?

Ásgrímur Hartmannsson, 5.9.2014 kl. 19:19

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband