8.5.2020 | 19:55
Þú fyrst.
Það er óskaplega slæmt og rekur rýting í samstöðuna sem við höfum öll verið að reyna að byggja upp á Íslandi til þess að komast saman í gegnum þessa tíma, sagði Bjarni í viðtali við fréttamann RÚV
Rifjum aðeins upp:
https://www.mbl.is/frettir/innlent/2020/04/08/laun_aedstu_radamanna_haekkudu_um_aramotin/
Samstaða...
![]() |
Óskaplega slæmt |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
8.5.2020 | 15:51
Og hvers vegna voru þeir að eltast við þennan mann?
Jú, af gömlum vana:
"Gregory McMichael served as an investigator for Glynn County District Attorney Jackie Johnson."
(af Breibart: https://www.breitbart.com/politics/2020/05/07/arrests-made-in-shooting-death-of-ahmaud-arbery/)
Þetta voru ekkert bara einhverjir gaurar.
Ég veit ekki af hverju þessum upplýsigum er sleppt hjá MBL.
![]() |
Feðgar ákærðir fyrir morð |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
8.5.2020 | 15:35
Þetta má alveg skoða nánar
"Antonio Guterres, aðalframkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, vill að allt verði gert til að binda enda á fljóðbylgju haturs og rasisma vegna kórónuveirunnar. Guterres nefndi þó engin lönd þessu til stuðnings."
Nefnir hann einhver dæmi? Um eitthvað?
Að sögn Guterres hefur verið litið á farandfólk og flóttamenn sem illmenni og uppsprettu veirunnar ...
Hver sagði honum þetta?
...og þeim neitaður aðgangur að heilbrigðisþjónustu.
Þessi hluti meikar hinsvegar fullkominn sens.
Hérna, (eftir langa leit) af RT: https://www.rt.com/newsline/486618-human-rights-crisis-un/
The UN chief warned that, with rising ethno-nationalism, populism, authoritarianism and a push back against human rights in some countries, the crisis could provide the pretext to adopt repressive measures for purposes unrelated to the pandemic, AP said.
Er það ekki einmitt rétt hjá honum?
![]() |
Flóðbylgja haturs og rasisma vegna veirunnar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
5.5.2020 | 20:33
Elliði hefur ekki rangt fyrir sér
Segja má að Elliði Vignisson, bæjarstjóri Ölfuss, taki í annan streng þegar hann líkir merkinu við myndmál nasista.
Segir Elliði.
Samfylkingin eigi ekkert skylt við þau samtök og því sé honum spurn af hverju notast sé við þetta myndmál.
Það er nú fleira líkt með Samfó og Nazistum en ólíkt.
1: Bæði eru demókratískir sósíalistaflokkar.
2: Bæði tönnlast á mikilvægi sterkra leiðtoga.
3: Bæði vilja sameina Evrópu.
4: Bæði eru á móti einkarekstri, einkaeign eða einka nokkru, ef út í það er farið.
5: Bæði vilja sem öflugast ríkivald.
og svo framvegis.
Adolf sjálfur hefði passað svona líka helvíti vel í Samfylkinguna: vegan, listamaður, ekki með bílpróf... svo tónaði hann út ræðunum sínum í sama stíl og þessir helstu Samfóistar, tékkið bara á hvernig Jæohanna Sigurðar hélt alltaf ræður. Og Imba Solla á undan henni.
Samfó eða NSDAP, hver er munurinn?
![]() |
Skiptar skoðanir um nýtt merki Samfylkingarinnar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
1.5.2020 | 23:30
Hótanir hótanir...
Skoðum:
Vörnin
- Að öllum markmiðum Lífskjarasamningsins verði náð fyrir haustið.
Hver voru þau aftur? Eitthvað sem við viljum öll?
- Seðlabankinn noti sinn forða til að halda genginu stöðugu með gjaldeyrisforða eða höftum. Opið og upplýst almenningi hverjir eru að kaupa og selja gjaldeyri á Íslandi.
Illskiljanlegt er hvers vegna gengið féll. Grunar mig sterklega að það myndi gera illt verra að vera eitthvað að sóa gjaldeyrisforða í að fikta í því.
- Frysta verði vísitölu neysluverðs til verðtryggingar á lánum og leigusamningum þannig að eignir landsmanna og kaupmáttur brenni ekki upp.
Fólk þarf allt að taka sig til og breyta yfir í óverðtryggð lán. Græða aðeins á lélegri hagstjórn, svona einu sinni.
- Að tekin verði ákveðin skref í að afnema verðtryggingu neytendalána.
Það er hægt núna að taka óverðtryggð lán.
- Að fjármálafyrirtæki og stofnanir skili vaxtalækkunum og lækkun á bankaskatti til neytenda.
Bankarnir eru ríkisfyrirtæki núna...
Svo, bankaskatturinn fór í ríkið. Þegar bankarnir lækka ekki vexti þegar bankaskatturinn lækkar fer sá peningur í ríkið.
Þessu verður seint breytt. Sennilega um svipað leiti og Satan býr til snjókall.
- Beinar greiðslur í gegnum barnabótakerfið og húsnæðisstuðningur verði aukinn.
Það verður gert, að nafninu til.
- Hækka greiðslur til lífeyrisþega og lækka skerðingar.
Það eru stórhættulegar hægri-öfga hugmyndir, sem verður erfitt að koma í gegn.
- Að fasteignagjöld, leikskólagjöld og fæðiskostnaður skólabarna verði felld niður hjá foreldrum barna sem eru atvinnulausir að hluta eða öllu leyti.
Það er sveitarfélaganna að ákveða.
- Tekjutengdar atvinnuleysisbætur verði hækkaðar og möguleiki að vera á þeim í 6 mánuði eða lengur og viðmiðunartímabil varðandi tekjur verði útvíkkað.
Ég man eftir þeim. Þær voru hærri en mánaðarlaunin. Það var magnað.
- Stórauka þjónustu og stuðning við atvinnuleitendur í mennta- og fræðslumálum og sálgæslu.
Veit ekki hve mikill hann er nú, eða hvort hans þarf við.
- Allur stuðningur hins opinbera við fyrirtæki verði þeim kvöðum háð að þau vinni ekki gegn samfélagslegum gildum og hagsmunum almennings.
Það er hlutverk ríkisins að vinna gegn gildum og hagsmunum almennings, og ég hef ekki enn frétt af fyrirtæki sem hefur reynt að hasla sér völl á því sviði.
Getiði bent mér á eitt, með dæmum?
Sóknin
- Hlutdeildarlánum verði komið á sem fyrst til að styðja við fyrstu kaupendur og jaðarsetta hópa á húsnæðismarkaði með stórfelldri uppbyggingu á hagkvæmu húsnæði.
Svoneeins og Sub-prime lánin sem settu hagkerfið á hliðina AD 2008?
- Aukin verði stofnframlög í almenna íbúðakerfið.
Hugsa ég að það geri húsnæðisverð bara hærra. Fyrsta atriðið á listanum mun hafa sömu áhrif.
- Opnað fyrir inngöngu í framhalds- og háskóla og á lánamöguleika og styrki í gegnum LÍN og verðtrygging námslána verði felld niður eða þeim breytt í styrk.
Það væri alveg ágætt ef námslán væru óverðtryggð. Hitt leyfi ég mér að efast um.
- Stórauka og flýta innviðauppbyggingu sem ríkið þarf hvort sem er að standa undir svo sem á aðstöðu við náttúruperlur á stígum og vegakerfi.
Flas er ekki til fagnaðar.
Og: náttúruperlur á stígum???
- Allir vinna" átakið verði útvíkkað enn frekar.
Nánar um það?
- Fyrirtækjalýðræði verði komið á með lögum þar sem starfsfólki er tryggt sæti í stjórnum fyrirtækja.
Af hverju? Var hann að lesa Mein Kampf núna? Þar er ekkert að finna sem okkur vantar.
- Heildarendurskoðun á skattkerfinu með aukinn jöfnuð að leiðarljósi.
Þessi krafa er í klárri mótsögn við kröfuna hér að ofan: "Hækka greiðslur til lífeyrisþega og lækka skerðingar." - Skerðingarnar eru til þess að *AUKA JÖFNUÐ!*
Okkur vantar meiri jöfnuð eins og okkur vantar sníkjudýr í augun.
- Starfsmönnum fyrirtækja verði boðið að taka þau yfir fari þau í þrot.
Ég sé ekki hverju ég væri bættari með gjaldþrota fyrirtæki.
- (1:) Efla eftirlit með skattaundanskotum og (2:) færslu fjármuna til aflandseyja og (3:) að fjármunir úr skattaskjólum verði ekki gjaldgengir í íslensku hagkerfi.
1: Það er eftirlit. Það virkar eins og það virkar. Meira eftirlit er ekki útgjaldanna virði.
2: Þetta er gert af fleiri en einni ástæðu, og meira eftirlit/fikt í þessu mun hafa aukaverkanir sem verða ekki okkur í hag.
3: hvernig munu þeir vita hvaða peningar það eru?
- Endurskoðun á auðlindastefnu þjóðarinnar og tryggja eignarhald almennings til framtíðar.
Það sem allir eiga, það á enginn.
- Hefja vinnu við endurskoðun á lífeyris- og almannatryggingakerfinu og hefja umræðu um óskerta framfærslu.
... OK.
- Þjóðarátak í nýsköpun með áherslu, hagsmuni og velferð launafólks og umhverfismál að leiðarljósi.
Láttu fólk í friði og það mun skapa eitthvað nýtt eftir þörfum.
En það er náttúrlega hægt að hindra fólk með umhverfismálum og/eða eftirliti. Skattar eru líka sívinsæl og góð leið til að hægja á eða stöðva nýsköpun.
Ekki held ég mig langi í hans byltingu.
![]() |
Hótar annarri búsáhaldabyltingu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
1.5.2020 | 18:59
Átti þetta að hljóma svona fasískt, eða var það slys?
"Sérgæska og fókus á þröngan eigin hag skilar fólki bara ofan í gröfina, sagði Páll"
Semsagt, ef þú, eiginhagsmunaseggurinn sem þú ert, forðast smit, þá MUNTU DEYJA!
Dauði dauði dauði!
![]() |
Sérgæska kemur fólki ofan í gröfina |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
1.5.2020 | 18:56
Hríðskotabyssur eru þegar bannaðar í Kanada
Hafa verið bannaðar ansi lengi. Þið getið flett því upp, en ég giska síðan fyrir 1960.
Hvað voru þeir þá eiginlega að banna?
Eru hríðskotabyssur kannski bannaðar á tveimur stöðum í lögunum hjá þeim núna?
![]() |
Yfirvöld í Kanada banna hríðskotavopn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |