Kemst ekki í eitthvert ráð, fer í fýlu, stórfrétt.

Það er alveg rétt hjá Helga Hrafni, hún er ekkert dipló.  Og ekkert opin fyrir öðrum skoðunum eða umræðum.

Ég hef vídjó: https://vimeo.com/191338097

Ekkert verið að hlusta á mikilvægan vinkil á málinu hérna.  Bara skamm!  Og þegiðu svo.

Svo neitar Wikileaks að gangast við henni núna.

"„Birgitta býr til ósætti frek­ar en sætti og er al­gjör­lega ófeim­in við það og stær­ir sig af því. Hún krefst þess að aðrir leiti álits hjá sér en leit­ar ekki álits annarra. Hún gref­ur und­an sam­herj­um sín­um ef hún sér af þeim ógn. Hún hót­ar þeim ef hún fær ekki það sem hún vill.“ Þetta sagði Helgi Hrafn..."

Hinsvegar hefur Helgi Hrafn komið ágætlega fram til þessa.  Hef ég því minni ástæðu til að rengja hann.

Og þarna lýsir hann kengrugluðum sósíópata sem hann þarf að umgangast daglega.

Gaman.

Það er erfitt fyrir hann að draga flokkinn upp með svona þungt lóð áfast honum.


mbl.is „Ég upplifi ákveðið mannorðsmorð“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Með manifesto og allt

Vitleysingur drepinn í gönuhlaupi.

Þarna höfum við bjána sem hafði fyrir því að skrifa manifesto, (hvað er með leftista og manifesto?  Veit það einhver?) og fór svo og reyndi að myrða einhverja.

Ég nenni ekki að tíunda alla rökleysuna í því sem þessi pjakkur var að reyna að vekja athygli á, forvitnir geta skoðað meðfylgjandi hlekk hér að ofan.

Annað er að hann náði ekki að myrða neinn, og fellur því í gleymsku að eilifu.

Amen.


Bloggfærslur 17. júlí 2019

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband