Einn besti tónlistamaður sögunnar

Fadades er sérvitringur sem framkallar sérkennilega tónlist, og býr til við tónverk sín þessi vídjó, sem segja nokurnvegin samhangandi sögu:

Hér er Fadades eitthvað að væflast í kirkjugarðinum.  Ekki veit ég hvað textinn þýðir, en maðurinn lítur út eins og pípuhreinsari, eða moppa, og það veit alltaf á gott í músík-bransanum.

Í þessu vídjó-vrki er Fadades á ferð um geiminn, þegar honum dettur í hug að skreppa aðeins til Egyptalands og gretta sig og steyta kannski hnefann aðeins.
Allt í 5.1 Surround, að sjálfsögðu.

Fadades kemur fljúgandi í snjóbolta, og er að þvælast uppi á einhverju fjalli.  Hausinn á honum springur ítrekaðí loft upp, eins og flugeldur, á ábyggilega afar táknrænan hátt.

Hér er Fadades kominn aðeins neðar í fjallið.  Þar finnur hann þessa pöddu, sem hann ákveður að borða.  Ég geri ráð fyrir, án þess að vita betur, að textinn fjalli um hversu ljúffendg þessi padda var.

Og hér er Fadades á tunglinu, þar sem hann lendir í eldingaveðri, og virðist ekkert sáttur við það.  Ekkert frekar en hann virðist mjög hrifinn af öðrum stöðum, svosem.  Hönumm er líka í nöp við styttur og annað skraut sem er á víð og dreyf um allt tungl.

Englar og krossar eru kannski ekki hans deild.


Bloggfærslur 20. mars 2020

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband