Ekki sannfærandi krafa

Af augljósum ástæðum:

https://www.mbl.is/frettir/innlent/2020/04/08/laun_aedstu_radamanna_haekkudu_um_aramotin/

"Þetta er ekki góð leið til að vekja sam­hug á þess­um tím­um,“ sagði Katrín."

Kröfur útgerðarinnar eru lögfræðilegt úrlausnarefni.  Dómsvaldið.  Ekki eitthvað fyrir þingið.


mbl.is Fyrirtæki í sjávarútvegi dragi kröfu til baka
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Í sumar verður plágan búin,

og þá verður ríkisstjórnin aftur ein um að reyna að koma landinu á hausinn.


mbl.is „Hljótum að skoða“ aðstoð við önnur ríki
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ferðast inndyris

Nú þegar lítur út fyrir að ferðalög um erlönd verði erfið í meira lagi vegna Kína-kvefsins, og óljóst er með ferðalög innlendis, af fjárhagsástæðum, þá eru margir sem íhuga alvarlega að ferðast bara inndyrirs.

Eða það vona ég.  Það væri illt ef fólk festist allt á Camara do Sonno ströndinni allt sumarið.

Flestir held ég kíki nú á Casa del fuego, og skoði jafnvel íshellinn þar. Þar er stundum hægt að finna bjór, ef ekki annað góðgæti.

Annar sniðugur áningastaður er Sala de Estar, þar sem er að finna altari Netflix, þar sem menn geta öðlast marskonar gefandi trúarlega reynzlu.  Nú eða drukkið bjórinn sem menn fundu í íshellinum á Casa del fuego.

Nauðsynlegt er svo að skreppa í Senmenjo hofið og skoða þar Vortex de Merde lindina, sem er kannski ekki nauðsynlega áhugaverðasti áfangastaðurinn, en nauðsynlegur engu að síður.

Allt mjög sniðugt, og vert þess að kíkja á um sumarið.


Bloggfærslur 14. apríl 2020

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband