21.7.2020 | 22:24
Logi vill ekki að við sigrumst á Kínaveirunni?
Af hverju? Er Kínaveran allt í einu voða jákvætt og gott fyrirbæri?
Skrítið, hún var það ekki í gær, þegar átti að setja fólk í sóttkví og ég veit ekki hvað og hvað fyrir að vera með hana.
Hvað breyttist?
Logi er allt í einu einhver pláguberi. Hvað á það að þýða?
![]() |
Óviðeigandi og dónalegt |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
21.7.2020 | 21:19
Uppreisn í Portland
Department of Homeland Security
Andy Ngo á Twitter:
Áreiðanlegri en CNN. Og MBL... og MSM... og fullt af öðrum.
Þetta vídjó endar á mjög írónískum söng, þar sem hópur óeirðaseggja í óeirðabúningum (með hjálma og alles) söngla: "I can't see no riot here, take off your riot gear"
Gaman að hafa svona lagað í 2 mánuði.
Frakkar voru að mótmæla samfleitt í næstum ár. Engum datt í hug að banna lögreglunni þar að skerast í leikinn þegar það fór yfir strikið (sem gerðist oft.)
Hvernig væri þetta í Reykjavík? Ef borgarstjórnin þar myndi bara reka lögregluna, og fá einhverja kexruglaða vini sína til að fara um á hverri nóttu, kveikja í 1-2 strætisvögnum og 14 reiðhjólum, og aðra hverja viku einhverju merkilegu húsi, td, Þjóðleikhúsinu eina vikuna, Ráðhúsinu á næstu, og berja alla vegfarendur sem þykja ekki líklegir til að svara í sömu mynt?
Þætti það jákvætt, svona almennt?
Nei, held bara að fréttamiðlar myndu lofsyngja þá hegðan sem merkilegan menningar-viðburð. Flestir aðrir yrðu lítið hrifnir.
Ég yrði ekki hissa ef næsta verk hjá kananum væri að loka bara allt fylkið af, svo þetta breiðist ekki út.