10.7.2025 | 18:27
Lýðræði er tveir úlfar og ein kind að ræða hvað á að vera í matinn
Alþingi er að missa vitið:
"Hart hefur verið tekist á á Alþingi Íslendinga í dag í kjölfar þess að Hildur Sverrisdóttir, þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins, sleit þingfundi í gær í óþökk meirihluta þingsins og Þórunnar Sveinbjarnardóttur þingforseta.
Þeir sem harðast hafa gengið gagnvart Hildi segja hana hafa framið valdarán..."
Þeir hefðu kannski ekki átt að sniffa svona mikið lím í æsku.
Sæland lýsir framtíðaráformum sínum
"Inga Sæland, formaður Flokks fólksins og félags- og húsnæðismálaráðherra, spyr hvort stjórnarandstaðan vilji að á Íslandi ríki þannig ástand að nýir valdhafar þurfi að draga gamla valdhafa undir húsvegg og skjóta þá svo að valdaskipti séu tryggð."
Fjárans kommúnistar.
"Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra segir ljóst að frumvarp hennar um hækkun veiðigjalda verði að lögum. Hún segir að ríkisstjórnin muni beita þeim úrræðum sem henni standa til boða til að keyra málið í gegn og útilokar ekki að svokölluðu kjarnorkuákvæði þingskaparlaga verði beitt."
Ég hef tekið eftir að þetta snýst ekkert um neitt annað en bara að koma máli í gegn, til þess að valda tjóni. Sem er fyrirsjáanlegt.
Venjulegt fólk veit svo ekkert um það, efni eða afleiðingar, heldur stillir sér bara upp í lið.
Venjulegt fólk virðist hafa allar sínar upplýsingar um sjávarútveg úr ljóðlínu frá hljómsveitinni Rass: það eru einhverjir kallar sem eiga allan fiskinn.
Meira fæst ekki frá fólki. Dýpra er það ekki.
Og nú er málið bara tvær górillur að berjast. Hvor górillan vinnur svo segir til hvort ríkið fer á hausinn á þessu ári eða eftir 5 ár.
Hef mínar efasemdir um þessa hugmynd
"Business Insider reports that in an announcement on Thursday, Elon Musk declared that Grok, the AI chatbot created by his company xAI, will be integrated into Tesla vehicles in the near future."
Efasemdir...
Ahem...
Country: