4.9.2012 | 20:40
Það skildu þó ekki vera mótorhjól?
Það eru alltaf sprengingar í slíkum hjólum. Það er nauðsynlegt.
Það hefur verið mikil vitundarvakning síðustu ár varðandi hjólreiðar
Hvað þýðir þessi setning?
og kosti þess að ferðast á fáknum til og frá vinnu og bæði spara peninga og stunda líkamsrækt með litlum tilkostnaði.
Ég kenni masókisma um.
í vor var gert ráð fyrir metári í sölu,
Eða var gert ráð fyrir metsölu í ár?
hjólamenningin ávallt að ryðja sér meira rúms í skipulagi bæja og borgar.
Menning? Þvingunaraðgerðir, meinarðu?
Mbl.is ræddi við Ragnar Ingólfsson, [...] um stöðu hjólamála
*facepalm*
það er mikil vakning í hreyfingu í samfélaginu,
Þetta er latína fyrir mér.
Það er engin sprengja í rafhjólum
Það er gott að heyra. En ég er heldur ekki hissa á því.
Já, semsagt, það er svo mikil kreppa núna að fólk er farið að selja bílana sína og kaupa sér reiðhjól í staðinn. Helst hjól sem innihalda ekki sprengjur. Gott er að heyra að fólk kemsty bæði til vinnu á þeim og til baka, en ekki bara aðra leið.
Ah, fátækt, hvar værum við án hennar?
Sprenging í keppnishjólum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Vísindi og fræði | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.