7.10.2012 | 19:40
Hetja dagsins.
Að kasta af sér þvagi í miðborginni er brot á lögreglusamþykkt Reykjavíkurborgar og liggur við því sekt.
Að horfa á myndband er góð skemmtun... osfrv.
Í nótt missti einn íbúi miðborgarinnar þolinmæðina þegar þrír menn stóðu og migu utan í kjallaraglugga á svefnherbergi hans. Maðurinn hljóp út með frumskógarsveðju í hendi að sögn lögreglu og rassskellti mennina með sveðjunni.
Þessi maður rúlar.
Mönnunum brá mikið að sögn lögreglu,
Til þess var leikurinn gerður.
... í kjölfarið handtekinn og gefur nú skýrslu þar sem honum gefst að sögn lögreglu kostur á að útskýra háttalag sitt.
Ja, menn voru að saurga heimili hans. Lá það ekki ljóst fyrir?
Annars, hvað gerðu þeir við gluggamigana? Ég vona að þeir verði kærðir, annað væri bara rangt.
Stökk nakinn út með sveðju | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Vísindi og fræði | Facebook
Athugasemdir
Þegar náttúran kallar þá er lítið annað hægt að gera en að svara.
Það er ekki nóg að beita bara sektum það þarf að bæta og fjölga klósettaðstæðum í miðbænum og þá sérstaklega fyrir þá sem eru á rölti á götum úti.
Hallgeir Ellýjarson, 8.10.2012 kl. 07:45
Menn geta nú migið út í horn eða upp við staur eða bakvið hús. Að láta þvag beint á glugga er svolítill dónaskapur.
Ásgrímur Hartmannsson, 8.10.2012 kl. 18:20
Já ég var alls ekki að réttlæta það auðvitað hefðu þeir átt að gera það. En ekkert af þessu er leyfilegt maður má ekki einusinni pissa á tré.
Hallgeir Ellýjarson, 8.10.2012 kl. 18:23
Og tré hafa bara gott af smá bunu.
Ásgrímur Hartmannsson, 9.10.2012 kl. 16:52
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.