25.10.2012 | 19:11
Maður er það sem maður borðar
Ég er hinsvegar ekki viss um að eldunaraðferðir þessa ágæta sælkera séu mjög góðar - ef tilvonandi matur verður til dæmis skelfingu lostinn fer út í blóðrásina adrenalín og fleiri skemmtileg hormón, sem skaða bragðgæðin, að auki getur farið út í vöðvana mjólkursýra, aftur með miður góðum áhrifum á bragðið, og margt annað smálegt.
Annað sem okkar maður hefur ekki pælt í, er að ef þú grillar matinn þinn lifandi, þá grillast maturinn með blóðinu enn í æðunum.
Venjulega er því tappað af.
Þess vegna er mjög vænlegt að drepa fyrst, elda svo. Ekki samtímis.
Já.
En hey, þetta hefði verið ódýrara en að kaupa í matinn. Það verður að kunna að bjarga sér á þessum síðistu verstu.
Skipulagði mannát í New York | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Vísindi og fræði | Facebook
Athugasemdir
þú talar af reynslu sé ég :] svo er barnakjöt alltaf best.
karl (IP-tala skráð) 25.10.2012 kl. 22:44
Maður verður að undirbúa framtíðina. Það er ekkert langt í að maður hafi ekki efni á að borða lengur. Þá eru það bara þeir mest hægfara...
Ásgrímur Hartmannsson, 25.10.2012 kl. 23:39
Voðalega eru þið ógeðfeldir
Ég veit að þetta á að vera grín en komon! þetta er ekki fyndið og mjög ósmekklegt og sérstaklega þetta með börn þar að auki
Siggi (IP-tala skráð) 26.10.2012 kl. 16:00
Siggi - gefið að þú sért ekki grænmetisæta borðar þú reyndar börn á hverjum degi. Kálfa og kjúklinga sem dæmi. Það eru börn sem eiga foreldra, því er ekkert öðruvísi farið í náttúrunni.
Jón Flón (IP-tala skráð) 26.10.2012 kl. 18:12
Vissir þú að allir kjúklingar sem þú borðar eru kvenkyns?
Það er ekkert mál að stjórna kynferði kjúklinga - maður bara stillir hitann rétt.
Ásgrímur Hartmannsson, 26.10.2012 kl. 19:53
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.