30.11.2012 | 16:27
Makróbíótískur Vestmannaeyzkur fjörusandur til sölu
Makróbíótískur Vestmannaeyzkur fjörusandur er flestra meina bót, til dæmis hefur aldrei verið vísindalega sannað að neyzla hans vinni ekki bót á magakrabba, beinkröm eða sigðfrumublóðleysi.
Þessi fjörusandur fæst einungis í fjörum hinnar dulmögnuðu suðrænu eldfjallaeyju Heimaey, þar sem hvalir eigra um og lundar búa í holum.
Takið inn eina teskeið af Makróbíótískum Vestmannaeyzkum fjörusandi við hverjum kvilla. Hann reynist miklu betur en venjulegur Reykvízkur sandkassasandur.
(Teskeið fylgir ekki með.)
Hvar er nú ríkisstyrkurinn sem ég á von á fyrir kukl?
Flokkur: Vísindi og fræði | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.