Vissu þið að það eru íshokkílið á Íslandi?

Já, í fleirtölu?

AMK tvö.

Ja hérna... komst að þessu áðan, heyrði í fréttum. Það þýðir að fleiri stunda þetta en bara örfáir sérvitringar sem rétt bara vita óljóst af hver öðrum. Það eru að minnsta kosti nógu margir til að mynda lið. Tvö lið.

Eru lið í einhverju fleira sem ég vissi ekki af? Póló, til dæmis?

Næst segja þeir okkur að það séu tvö hafnaboltalið.

Og þó... það væri eftir öllu að hafnabolti væri hreinlega ólöglegur.

Reyndar er stórskrítið að golf skuli ekki vera með öllu ólöglegt, að viðlagðri fangelsisvist.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband