Er ekki nóg af slíku í Noregi?

Eða er ég að gera þau mistök að halda að þeir séu eins og við?

Ég meina, hér eru allir flokkarnir fasískir, á einn hátt eða annan...

Berum þetta undir wiki:

Norski verkamannaflokkurinn er með 29% (32% stendur annarsstaðar á síðunni, en hey, wiki...) - þeir eru Sósíaldemókratar, sem sagt, fasistar.  Svona nokkurnvegin.  Ætli þeir séu ekki líkastir sjálfstæðisflokknum hérna.  Ekki nógu hard core fyrir Breivik.

Norska framsókn er með svona 22%.  Þeir eru hægri menn, ólíkt íslensku framsókn.  Ekki flokkur sem yrði kosinn hér, held ég.

Svo er Íhaldsflokkurinn.  Með 14%.  Þeir eru það sem þeir segjast vera... hægra megin við miðju, hliðhollir EB.

Þar höfum við það.  Nojarar eru hægri-öfgamenn á Íslenskan mælikvarða.  Ég sé ekki fyrir mér að Breivik fengi neitt fylgi.

Ég myndi segja honum að flytja til okkar, en það væri að bera í bakkafullan lækinn. 

 


mbl.is Fær ekki að stofna fasistaflokk
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband