4.9.2014 | 17:25
Fer eftir færi
"Almennir lögreglumenn búa aðeins yfir lítilli kylfu og piparúða þegar kemur að átökum"
Þessi frasi, *þegar kemur að* er svo slæmur stíll, að hann skemmir fyrir skilningi. Þetta er úr *lélegri* ensku.
Ambrose Bierce hefði aldrei orðað neitt svona.
"Borið hefur á að almennir lögreglumenn þurfi að beita sér í málum þar sem þungvopnaðir misgjörðamenn eiga í hlut."
Endilega segið frá.
"jafnvel bara almenn slagsmál hérna í Reykjavík,"
Er GAS! GAS! gaurinn hættur?
" Það hefur ýmislegt verið rætt í þessu samhengi, meðal annars að þjálfa lögreglumenn í umgengni og beitingu skotvopna."
Reynzla breta & bandaríkjamanna í því hefur verið ... götótt. Danir hafa líka reynzt miklir slúbbertar. Allir aðrir... það reddast.
"Það er ekki inni í myndinni að fara að beita þyngri vopnum sem valdbeitingartæki"
Ég gef því 10 ár. Mest.
Ég treysti Íslensku vandstjórninni alveg nákvæmlega jafn vel og hún treystir mér.
Kylfur duga ekki gegn byssum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Vísindi og fræði | Facebook
Athugasemdir
Það er magna hvað fólki sem tjáir sig hægt treystir löggunni minnst en hefur fæstar hugmyndir umhvernig betur mætti fara? Er ekki bara málið að reka lögguna eins og hún leggur sig, þar sem hún er greinlilega ekki traustsins virði og bara leyfa fólki almennt að sjá um þessi mál sjálft?
hallur (IP-tala skráð) 4.9.2014 kl. 23:56
"Kylfan virkar ekki nógu vel á andlega veika og fíkla" -Guðmundur Ingi Rúnarsson, formaður Lögreglufélags Reykjavíkur
Þarf að segja meira?
sveinn ólafsson (IP-tala skráð) 5.9.2014 kl. 11:30
Hallur: þú misskilur.
Traust er gagnkvæmt. Ef einhver treystir þér ekki að fyrra bragði, spyrðu þig aldrei af hverju það er? Hvaða mann hefur þessi fyrir framan þig að geyma, fyrst hann ætlar þér þetta eða hitt að fyrra bragði?
Sveinn:
Ofbeldi er notað þegar búið er að klúðra hlutunum. Það er vissulega ákveðin lausn að skjóta bara alla geðsjúka og fíkla, en það væri vel hægt að umgangast þá á friðsamlegan hátt -
- en ég tala fyrir daufum eyrum þar, er það ekki?
Ásgrímur Hartmannsson, 5.9.2014 kl. 19:19
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.