9.9.2014 | 18:42
Hljómar vel
Kíki á þetta þegar tími er til, en:
"Þetta frumvarp boðar nýja frjálshyggjutilraun í íslenskum stjórnmálum,"
Sem væri nýjung, vissulega. Frjálshyggje hefur alltaf átt mjög erfitt uppdráttar hér á landi, síðan... alltaf.
segir Katrín Jakobsdóttir, formaður Vinstri grænna,
Þar sem VG vite ekki merkingu orðsins "frjálshyggja," -og reyndar mjög margra annarra orða- veit ég ekki við hverju á að búast. Hvað meinti hún?
Fram kemur, að í fjárlagafrumvarpinu birtist áform ríkisstjórnar Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks um að láta velferðarsamfélagið mæta afgangi,
Það væri nú óskandi ef öll fjárlagafrumvörp væru byggða slíkum áformum.
...draga úr samneyslunni úr 28% í 24,5% af vergri þjóðarframleiðslu á fjórum árum."
Mætti draga meira úr henni.
"Þetta þýðir í raun að Ísland færist úr flokki með Norðurlöndunum, þar sem samneyslan er alls staðar um eða yfir 30%, yfir í hóp þjóða þar sem velferðarkerfið er mjög veikt, lætur Katrín hafa eftir sér í tilkynningunni."
Ég var búinn að impra á því að VG skilja ekki mörg orð...
"virðisaukaskattur á mat, bækur og ýmsar nauðsynjar er næstum tvöfaldaður. Þetta muni koma verst við lágtekjuhópa og venjulegar fjölskyldur, og alls óljóst hvaða áhrif svokallaðar mótvægisaðgerðir hafi í því sambandi. "
1: mér skilst að lægsta VSK þrepið hækki úr 7% í 10%. Það ku vera ~43%. Það er ekki næstum tvöföldun.
VG kann ekki heldur að reikna.
2: hverjar eru þessar mótvægisaðgerðir?
"Þingflokkurinn hefur einnig áhyggjur af litlum metnaði til að bæta áfram afkomu ríkissjóðs frá þeirri síbatnandi stöðu sem núverandi ríkisstjórn tók í arf frá ríkisstjórn Vinstri grænna og Samfylkingar."
Veruleikafyrrtir, kunna færri orð en páfagaukur, kunna ekki að reikna... VG í hnotskurn.
"Samkvæmt frumvarpinu verður tekjuafgangur ríkissjóðs aðeins 0,2% af vergri þjóðarframleiðslu árið 2015 og 0,3% árið 2016,"
Ef allt gengur upp.
en fyrri áætlanir höfðu gert ráð fyrir margfalt meiri tekjuafgangi."
Áætlanir... á hverju voru þær byggðar? Draumórum?
Get gert betri athugasemdir eftir að ég hef rúllað yfir þetta plagg.
Frjálshyggjutilraun í fjárlagafrumvarpi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Vísindi og fræði | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.