10.4.2015 | 18:40
Þetta á sér einfalda skýringu
Greindarvísitala er athuguð með krossaprófi.
Þeir sem eru góðir í að taka krossapróf mælast með hærri greindarvísitölu en þeir sem eru það ekki.
Maður getur orðið betri í að taka krossapróf með æfingu.
Þair sem taka fleiri krossapróf hafa betri þjálfun í að taka krossapróf, vegna meiri æfingar.
Þá æfingu fær fólk í skóla.
"þeir sem höfðu alist upp hjá ættleiðingarforeldrum sínum voru með að meðaltali 4,4% hærri greindarvísitölu.
Þegar hópur ættleiðingarforeldra var svo kannaður kom í ljós að þeir foreldrar voru að meðaltali eldri, menntaðri og bjuggu við betri kjör, bæði félagslega og fjárhagslega."
Svolítið klaufalega orðað, en: eldri menntaðari og ríkari foreldrar halda krökkum greinilega betur í skóla, að námi, sem þýðir: meiri þjálfun í að taka próf, og almennt meiri menntun - sem er alltaf betri en minni menntun.
Þetta gefur ekki til kynna grunn-getuna. Bara að viss þjálfun hefur orðið. Það er erfitt að verða gáfaður, en það gerir lífið auðvelt að vera gáfaður.
Uppeldið áhrif á greindarvísitölu? | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Vísindi og fræði | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.