24.5.2015 | 15:00
... ha?
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra sagði [...] að það kæmi til greina að hækka skatta ef samið yrði um launahækkanir í kjaraviðræðum sem ógna stöðugleika.
Já, en, fólk er að heimt launahækkanir vegna þess einmitt meðal annars að allur peningurinn fer í skatta.
Hér er verið að búa til vítahring. Hvar lærði þessi pési eiginlega hagfræði? Já Steingrími J & Jóhönnu hér varð hrun?
Skattahækkanir væru vopn til að bregðast við aukinni þenslu og verðbólgu.
Með því að búa til meiri verðbólgu?
Ég er ekki að boða þetta.
Hvað varstu þá að segja?
Ég er bara að segja að ef við horfum fram á verulega verðbólgu, þá mun auðvitað þurfa að bæta kjör örykja og auka bætur í samræmi við verðlagsþróun, sagði hann.
Eða ekki.
Vinnandi fólk verður að ganga fyrir öryrkjum. Það er vinnandi fólk sem skaffar, ekki öryrkjar.
Ef verðbólga fer af stað, þá felur það í sér aukinn kostnað hjá ríkinu í mörgum stórum málum, eins og í almannatryggingakerfinu, sem þýðir einfaldlega að ríkið þarf meiri tekjur.
Og í þeim tilgangi ætla þeir að búa til meiri verðbólgu?
Ríkið þyrfti jafnframt að hafa hamlandi áhrif á verðbólgu, en ekki ýta frekar undir hana.
Hærri skattar eru ekki leiðin til þess. Seinasta ríkisstjórn (og reyndar allar stjórnir þar á undan) kenndu okkur það, the hard way.
Og fólk lærir ekki...
Hann ítrekaði að hann væri ekki að boða skattahækkanir, þetta væri aðeins ein leið sem hefði verið litið til í gegnum árin til að bregðast við þenslu.
*facepalm*
Ég er ekki að boða þetta
Boðaðu þá eitthvað annað.
Skattahækkanir koma til greina | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Vísindi og fræði | Facebook
Athugasemdir
Og þetta kaustu.
Ómar Bjarki Kristjánsson, 24.5.2015 kl. 15:49
"og þetta kaustu"
Það vill nú svo til að við eigum engin peningatré, þannig að ef útgjöld ríkisins aukast þá verður einfaldlega að auka tekjurnar líka.... og ríkið hefur tiltölulega fáa valkosti aðra en að gera það í gegn um skattkerfið... og það yrði ekkert öðruvísi ef vinstri stjórn væri við völd.
stebbi (IP-tala skráð) 24.5.2015 kl. 18:12
Ef laun folks hækka um hundrad kronur fær rikid fjortiu kronur og ætti thad ad dekka aukin kostnad rikinsins vegna hækkana a botum og tharf tha ekki ad hækka skatta Sigmundur David,HVAR LÆRDIN THETTA FIFL HAGFRÆDI.
Benedikt (IP-tala skráð) 24.5.2015 kl. 22:12
Ómar: nei, það gerði ég ekki. Hvar færðu þessar undarlegu hugmyndir?
Benedikt: Mín kenning: á sama stað og Jóhanna & Steingrímur. Nema hann hreinlega kunni ekki að reikna (sem myndi skýra hvernig hann komst í þetta djobb til að byrja með.)
Ásgrímur Hartmannsson, 24.5.2015 kl. 22:59
Ef að ég má spyrja, hvernig koma skattahækkanir í veg fyrir verðbólgu? Þegar verðbólga kemur fyrir vegna launahækkana að þá er það vegna þess að launakostnaður fyrirtækja hækka sem að skilar sér síðan í hærra vöruverði, ekki satt? Sá kostnaður hverfur ekki þótt svo að launin séu skattlögt meira, nema ég sé að missa af einhverju?
sveinn (IP-tala skráð) 25.5.2015 kl. 01:48
Nákvæmlega.
Ásgrímur Hartmannsson, 27.5.2015 kl. 17:34
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.