20.6.2015 | 21:21
Eðlileg þróun er alltaf áhyggjuefni, eins og allt annað
Panfóbían lætur ekki að sér hæða.
Eiríkur Bergmann Einarsson, prófessor í stjórnmálafræði, segir að Danska þjóðarflokknum hafi tekist að breyta stjórnmálunum í Danmörku þannig að umræðan hverfist nú utan um þeirra málefni.
Þeir eru greinilega með langbesta PR teymið.
Reynda veit ég mest lítið um þá, annað en að Danirnir eru að fíla þá núna.
Stóru flokkarnir hafi hætt að mæta málflutningi flokksins með kröftugri andstöðu, heldur tekið málflutninginn bókstaflega upp að stórum hluta til.
Þeir hafa séð að hann selur.
Eiríkur segir [...] að niðurstaða dönsku þingkosninganna sé mjög afgerandi, þó svo að hún sé sumpart mótsagnakennd.
Skýrðu nánar.
Hún staðfestir þróun sem hefur verið í dönskum stjórnmálum í yfir nokkra áratugi, þar sem þau hafa verið að fikra sig inn í að hvíla mjög skýrt á þjóðernishugmyndum, andstöðu við innflytjendur og áherslu á menningarlega einsleitni.
Ja, þeir hafa verið að læra af reynzlu. Sem er framandi hér um slóðir. Hér lærir aldrei neinn af reynzlu, hvorki sinni eigin né annarra. Von að mönnum bregði við þvílík undur.
Hann segir einnig mjög eftirtekarvert að Danski þjóðarflokkurinn hefur náð að leiða stjórnmálaumræðuna í Danmörku undangengin ár, en fyrir um fimmtán til tuttugu árum þótti boðskapur hans óboðlegur í siðaðri stjórnmálaumræðu, ef svo má segja, og aðrir stjórnmálaflokkar kappkostuðu við að benda á það sem þætti óboðlegt í málflutningi flokksins.
Þeir verða bara að fara að stunda realpolitik. Það er ekkert alltaf hægt að búa í fantasíuheimi, þó það hafi gengi upp undanfarin 30 ár eða svo.
Svo endurtekur hann sig...
Dönsku kosningarnar marka áframhald á ákveðinni þróun á Norðurlöndunum sem hefur stigmast að miklu leyti undanfarin í ár og felst í upprisu hægriflokka sem eru á móti innflytjendum. (sic)
Já, magnað að vinstriflokkar sem eru á móti innflytjendum skuli ekki stækka líka. Þeir voru svona líka helvíti vinsælir hér í denn.
Uppgangur þjóðernishyggju áhyggjuefni | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Vísindi og fræði | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.