30.6.2015 | 17:36
Ef ekki þeir, þá bara einhverjir aðrir
Í gær var ár síðan að hryðjuverkasamtökin Ríki íslams lýstu yfir stofnun kalífadæmis á þeim landsvæðum sem samtökin réðu þá yfir í Írak og Sýrlandi. Jafnframt var því lýst yfir við sama tilefni að leiðtogi samtakanna Abu Bakr al-Baghdadi væri nú kalífi múslima alls staðar í heiminum. „Höfuðborg“ kalífadæmisins er Raqqa í Sýrlandi.
Í dag þessi sandauðn, á morgun, heimurinn.
Yeah yeah, been there, done that.
Á aðeins nokkrum árum hafa samtökin þróast úr litlum uppreisnarhóp í ein hættulegustu hryðjuverkasamtök sögunnar.
Hahaha!
KLofningshópur úr Al Kaida, allir too dumb to live gaurarnir, komnir saman til aðp berjast við óvopnað fólk.
úúúú... skerí.
Liðsmenn samtakanna, berandi svarta fána, náðu yfirráðum í borginni Mosul í Írak snemma í júní á síðasta ári.
Þeir gerðu það ekki einir. Þeir hefðu ekkert geta gert það einir.
Fljótt kom í ljós að hersveitir Íraka réðu ekki við kraftinn sem fylgdi Ríki íslams.
Hvaða kraft? Þeir ráða ekki eini sinni við gamalmenni og konur.
Hér er vandamálið útskýrt mjög vel:
Margir hermenn einfaldlega köstuðu frá sér vopnum sínum og hlupu í burtu sáu þeir til meðlima samtakanna.
Enginn mórall í því liði. Hann gufaði upp eftir að kaninn mölvaði þá.
En þrátt fyrir þessar tilraunir vesturveldanna sýna gögn að samtökin eru að mestu leyti ósigruð.
Hvaða gögn? Þeir eru enn að stór-tapa fyrir kúrdum í norðri. Þeir verða að fá allskyns ættálka með sér til að geta eitthvað í surði, vegna þess að Írakski herinn er byrjaður að fatta að það eina sem hann þþarf er að skjóta smá í áttina að þeim.
Það sést kannski helst á þeirri staðreynd að aldrei hafa fleiri tekið þátt í ofbeldisverkum í nafni samtakanna og um allan heim.
Er það allt?
3.095 árásir í nafni samtakanna og að 6.546 óbreyttir borgarar hafi látið lífið vegna þeirra síðan að kalífadæmið var stofnað.
Vá, rétt meira en tveir per árás. Afköst, maður.
Voðaverk samtakanna hafa vakið óhug um allan heim en mörgum að óvörum, einnig aðdáun. Mörg þúsund manns hafa ferðast til Sýrlands og Íraks til þess eins að ganga til liðs við Ríki íslams og berjast í nafni samtakanna.
Ekki að undra, morð hafa alltaf verið uppáhalds sport mannkyns. Minna nú en áður, en mannkyn er enn mennskt.
fyrr í þessum mánuði greindu bandarísk yfirvöld frá því að yfir 10.000 liðsmenn Ríkis íslams hafi fallið í 4.000 loftárásum síðan í ágúst á síðasta ári.
Miðað við að CIA heldur að ISIS hafi ekki nema 36-100.000 meðlimi, verður það að teljast gott.
Frábær nýliðun í þessu.
En hugmyndafræðin sem þeir hafa skapað, hún fer ekki neitt."
Þeir sköpuðu ekkert þessa hugmyndafræði. Við höfum þekkt þessa hugmyndafræði vel, alltaf.
Við vitum allt um hana:
"Gerðu það sem við segjum, annars..."
Það er hugmyndafræðin. Þekkiði hana ekki? Fer ekki um ykkur notalegur fiðringur þegar þið hugsið um hana?
Fólk fílar hugmyndafræði ISIS. Þess vegna lifir hún að eilífu. Amen.
![]() |
Baráttunni langt í frá lokið |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Vísindi og fræði | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.