4.2.2016 | 15:55
Er örugglega ágætis trog, og allt það...
Mörgum þótti fulldjarft [...] þegar hönnunarteymi Lexus ákvað að sækja í samstarf og innblástur til tónlistarmannsins Will.I.Am við hönnun á minni sportjeppanum frá Lexus, NX 300h.
Því ekki? Lexus mega ekki við því að vera leiðinlegri, þeir verða að préofa eitthvað.
En: Sport "jeppi?" Hátt & lágt? Læst? Ef ekki, þá er það ekki jeppi. Hvað' er svo hátt undir þetta?
Eins og við var að búast varð afraksturinn á margan hátt afgerandi vending frá fyrri jeppamódelum Lexus,
HAHAHAHA! Jeppi...
Man vel hvernig 2014 RX var. Það var *fólksbíll* fyrir mömmu þína. GX & LX eru jeppar. Læst drif, sjáðu til.
...sem flest höfðu til að bera hóflegar, lágstemmdar og nánast hlutlausar línur...
Líta út eins og Landcruiser. Vegna þess að þeir eru Landcruiser. Gamli RX bíllin lítur svo aftur út eins og mörkeppur, sem þykir fallegt form þarna úti.
... Í útliti eldast Lexus-jepparnir ágætlega, einkum 2. kynslóðin,
Þeir stinga ekki beint í augu, en þú finnur þá heldur ekkert á stæði.
...en mörgum þótti þó þriðja og næstnýjasta kynslóðin helst til straumlínulöguð.
Þeir eru næstum alveg eins. Svone eins og Ford Fairmont og Mercury Zephyr eru næstum alveg eins.
Skemmst er frá því að segja að hún er sú fallegasta og best heppnaða hingað til.
Smekksatriði. Finnurðu hann á stæði, já eða nei? Það er aðal-atriðið.
Munar þar ekki minnst um að línurnar hafa orðið skarpari og svipurinn sterkari. RX liggur ekki lengur í láginni heldur hreinlega sogar að sér athyglina.
Man ekki eftir að hafa séð einn.
Og hann fílar það.
Og hann fer líka út á nóttini og sýgur úr vegfarendum blóð.
Meðal einkar vel heppnaðra nýjunga má nefna upplýsingar sem varpað er neðst á framrúðuna fyrir ökumann svo hann þurfi sem allra minnst að taka augun af veginum í akstri.
Best er að trufla ökumenn með allskyns dóti á framrúðunni frekar.
Þar gefur að líta upplýsingar um hraða, vinnslu vélar (hleðsla/​hagkvæmni/​keyrsla)
... ég trúi því ekki að óreyndu að eyðzlumælirinn í þessu sé réttur.
...og loks hraða bílsins.
Þú varst búinn að segja það hér á undan þar sem þú sagðir það áður.
Það getur nefnilega býsna tímafrekt spaug þegar pílan á skjánum sem táknar bílinn er sein að taka við sér og skilgreining kerfisins á næstu beygju er á reiki.
Oftast nota ég kort, og vegvísa til hliðsjónar. En það trix virkar eiginlega bara í útlöndum.
Innanlands hef ég verið að skoða kortið vel áður en ég legg af stað, og plottað leiðina eftir því.
Þá getur maður skyndilega verið kominn út á hraðbraut í ranga átt og enginn kostur að snúa við næstu 15 kílómetrana.
Það hefur gerst. En þá var ég heldur ekki með kort, og vissi ekkert hvar ég var eða hvert ég var að fara.
Öll mín ferðalög eru óvissuferðir.
Með rúmlega 300 hestafla vél kemur sá möguleiki að slá vel í klárinn, það má nokkurn veginn bóka það.
... en hefur þetta aksturseiginleika til að geta notið þess?
NX bíllinn hafði þá. Gamli RX bíllinn hafði þá ekki, var reyndar með talsvert verri aksturseiginleika en Honda CRV. Sem er alveg ferlegt.
NX bíllinn er voða osom. Eini skemmtilegi Lexusinn. Ef þeir væru fáanlegir ofan af því að kalla hann jeppa...
Þó Lexus RX 450h sé rösklega tvö tonn að þyngd...
Þyngri en minn bíll.
Frá vélinni heyrist traustvekjandi urr ...
Það heyrist ekkert í mínum. Vélarhljóðið er yfirgnæft af viftunni á lægstu stilingu. Það er 18 ára gamall bíll.
...fágun hefur alltaf verið aðal þessarar bíltegundar ...
Þeir keppa við Benz.
... og eru að vinna. Stórt. Og Benz virðist ekki fatta það, eða af hverju.
...hinn nýi RX bætist í hóp módela frá Lexus sem skarta meira ögrandi útliti en áður...
Það þurfti að gerast.
... ekki fór mikið fyrir hvæsandi yfirsnúningi þegar lagt var í brattar brekkur í Lissabon og nágrenni þar sem bíllinn var prófaður fyrr í mánuðinum.
Ah... hið fjalllenda og torfæra Lissabon. Staður fyrir jeppasafarí, það. *Sport* jeppasafarí, sko.
... eyðslan, rétt um 5 lítrar á hundraðið,
GPS, og ~350 KM innanbæjar, og segðu mér svo hvað hann eyðír, í alvöru. En ekki í þessum fantasíuheimi þar sem allar leiðir eru undan halla, undan vindi og utanbæjar.
Lexus RX í fullmótaðri mynd | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Vísindi og fræði | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.