7.1.2017 | 04:56
Svo vitað sé.
Möguleiki 1: Danir fela peningana sína í meiri gæða skattaskjólum. íslendingar notast við meira low-budget skattaskjól. Vegna þess að við erum ekki eins rík og við höldum.
Möguleiki 2: Danir þurfa ekki að fela peninga í jafn miklum mæli, vegna betra stjórnkerfis.
Möguleiki 3: bæði ofangreind atriði eru rétt, að einhverju leiti.
Spurningin er, hver verða viðbrögðin, og hverjar verða afleiðingarnar?
Viðbrögð við 1: það verða sett lög sem A: hafa ekkert að segja, fæla í besta falli aflandsfé í önnur skattaskjól, eða B: koma sér mjög illa við helling af fyrirtækjum sem eru að nota skattaskjól til þess að fara ekki á hausinn.
Ef A: til hamingju, lögin eru núna flóknari. Ef B: Það verður tímabundin uppsveifla hjá ríkissjóði, eftir það verður minni innkoma.
Viðbrögð við 2: A: ekkert verður aðhafst, eða B: lög verða sett sem flækja málin og kosta pening.
Það sem er alveg öruggt að gerist ekki, er að skattaumhverfið verði gert samkeppnishæft við heiminn.
Næstum ferfalt hærri en í Danmörku | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Vísindi og fræði | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.