10.9.2017 | 23:49
Þetta er gullnáma
"Eldsneytisbrennsla og loftslagsbreytingar eru þeir mengunarþættir sem vega þyngst í framleiðslu á áfengum drykkjum."
Loftslagsbreytingar eru mengun núna.
"Notkun á glerumbúðum undir vín og bjór er heldur ekki jákvæð, þó það geti skipt máli hversu þungar glerflöskurnar eru."
Jú víst. Þetta eru endurnýtanlegar umbúðir. Því eru þær ekki nýttar þannig?
"Nýi heimurinn stendur sig þó betur en sá gamli í þessum efnum"
Bandaríkin og Ástralía nota gler. Evrópa notar gler. Sama efni, sömu aðferðir. Hvernig getur annað verið betra en hitt?
"Þetta segir Sigurpáll Ingibergsson, gæðastjóri ÁTVR, en norrænu áfengiseinkasölurnar sameinuðust árið 2014 um að láta útbúa vistferilsgreiningu á áfengum drykkjum."
Þar fór sá aur fyrir lítið.
"Í vistferilsgreiningunni eru tilgreindir níu umhverfisáhrifaflokkar: áhrif á öndunarfæri (öndun ólífrænna og lífrænna efna), hnattræn hlýnun, upptaka náttúru, visteitrun í jörðu og vatni, ofauðgun í jörðu, ljósefnafræðilegt óson, ofauðgun í vatni, súrnun og vinnsla jarðefna."
*áhrif á öndunarfæri - ekki anda víninu að ykkur.
*hnattræn hlýnun - galdrar, semsagt.
*upptaka náttúru - á hverju?
*visteitrun í jörðu og vatni - hvernig sker "visteitrun" sig frá annarri eitrun?
*ofauðgun í jörðu/ofauðgun í vatni - ofauðgun hvers?
*ljósefnafræðilegt óson - ... ha?
*súrnun og vinnsla jarðefna - sem þýðir hvað?
Af hverju grunar mig að hér hafi einhver verið að svindla stórt á ÁTVR?
"Fæstir leiða væntanlega hugann að kolefnissporinu sem að vínglasið eða bjórflaskan sem þeir dreypa á skilur eftir sig"
Enginn, leifi ég mér að fullyrða.
"Þannig vegur landbúnaður og umbúðaframleiðsla þyngst í tilfelli léttvína og bjórs,"
Réttið upp hönd nú, hver veit ekki að bjór og vín eru landbúnaðarafurðir? Og brennivín reyndar líka, þó það sé farið að verða meira iðnaðar-hliðarafurð.
"...þó að framleiðsla og geymsla séu einnig veigamiklir þættir varðandi bjórframleiðsluna."
Mér finnst að það ætti að draga af laununum hjá fréttamönnum í hvert skifti sem þeir segja eða skrifa "varðandi," "hvað það varðar," eða "þegar kemur að..."
Ég hef séð rannsóknir sem sýna að það þyrfti að nýta glerflöskuna 20 sinnum til þess að ná sömu umhverfisáhrifum og með fernur, plast- eða áldósir.
Seljið það bara í lítratali úr dælu þá, eins og bensín, ef þið hafið svona miklar áhyggjur. Fólk mætir með eigin ílát.
Myndi virka vel fyrir rauðvín og vodka, ekki svo vel fyrir bjór.
"Sigurpáll segir ákveðinn hóp íslenskra neytenda þegar vera meðvitaða um þetta. Þannig séu dæmi um að viðskiptavinir Vínbúðanna hafi sett sig í samband við starfsfólk eftir að hafa vegið vínflösku og komist að því að 750 ml flaska vegi jafnvel 1,5 kg."
Það eru nördar þarna úti sem vigta vínflöskur. Og þeir hringja í ÁTVR og segja frá því... af einhverjum ástæðum.
Erum við viss um að það hafi ekki verið peyjarnir þarna í útvarpinu með eitthvert grín?
Þegar fólk áttar sig á þessu þá hefur það jafnvel tilkynnt okkur að það ætli ekki að kaupa þetta vín framar.
Hljómar alveg nákvæmlega eins og Tvíhöfðaskets.
Raunveruleikinn hefur bráðnað, dyr í vídd heimsku hefur opnast og hleypt inn í okkar óværu af tegund sem við viljum ekki fá. Takk ÁTVR, að hafa með loftslagsgöldrum summonað þennan andskota í okkar vídd. Fuck!
"Spurður hvort ÁTVR hafi hug á að kynna betur hvaða vörur teljist umhverfisvænar, segir hann fyrirtækinu þeir annmarkar settir að það megi ekki hampa neinum einum frekar en öðrum út frá hlutleysissjónarmiðum."
Nei, segðu okkur. Svo ég geti einbeitt mér að því að kaupa þær vörur sem menga sem mest. Öðruvísi verður óværan sem þeir hafa kallað yfir okkur ekki rekin til baka.
Í nafni olíu og kola og heilagrar kjarnorku, amen.
Mældu sótspor tegundanna í Vínbúðunum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Vísindi og fræði | Facebook
Athugasemdir
Algerlega stórfenglegt tiltæki. Milljónatugum eytt í að ráða starfsmenn í allt eftirlitið, kaupa undir þá jeppa og senda þá heimshornanna á milli á ráðstefnur með tilheyrandi mengun. Og til hvers? Fyrirtækið má ekki mismuna framleiðendum, það má ekki auglýsa þær tegundir sem menga minna. Er til betra dæmi um algerlega tilgangslausa sóun? Ég efa það.
Þorsteinn Siglaugsson, 11.9.2017 kl. 17:56
Já, hnattræna hlýnunarsvindlið er gullnáma fyrir Al Gore og vini hans sem fundu upp á þessu scam. Og allir einföldu blaðamennirnir á Mogganum sem halda að CO2 valdi hýnun, gleypa við þessu bulli, meðan hinir sem vita sannleikann þora ekki að segja neitt af ótta við að missa vinnuna.
Pétur D. (IP-tala skráð) 11.9.2017 kl. 19:20
Sæll Ásgrímur!
Takk fyrir rýnina. Áhugavert hjá þér.
En þegar ég sé svona málfluting eins og hjá Pétri og Þorsteini, þá finnst mér eins og viðkomandi aðilar séu eigendur eða hluthafar í gráu fyrirtæki, fyrirtæki sem lifir á að framleiða eða þjónusta mengandi vörur. Sem leiðir af sé að gróðurhúsalofttegundir aukast, hiti á jörðinni hækkar, jöklar rýrna, sjórinn súrnar og lífvænleg landsvæði fara í kaf. Svona fók hugsar aðeins um sjálft sig. Ósjálfbær hugsun og ef þeir eiga börn og barnabörn, þá finnst þeim ekki vænt um þau, því þau fá að taka afleiðingunum, sem geta orðið svakalegar.
Það er rétt hjá þér í byrjun, mengunarþættir er kolrangt orð, þarna á að vera umhverfisþættir.
Umhverfisþættirnir sem skoðaðir voru eru 9 og listaðir upp. Það vantar mjög merkilegt súlurit sem hjálpað hefði við lestur greinarinnar. Hér er hægt að sjá súluritið: https://www.vinbudin.is/Portaldata/1/Resources/um_atvr/umhverfid/Mynd1.jpg
En útskýrum aðeins umhverfisþættina.
*áhrif á öndunarfæri - ekki anda víninu að ykkur. (e. respiratory inorganics). Air emissions: particulates, ammonia, NOx, SO2. Gott dæmi um þetta er mælingar sem gerðar voru við Sundahöfn í nágrenni við skemmtiferðaskip og sýndu mjög hátt hlutfall. En 80 Íslendingar deyja árlega út frá þessar mengun.
*hnattræn hlýnun - galdrar, semsagt. (e. global Warming) Losun áCO2, CH4, N2O, gróðurhúsalofttegundum.
*upptaka náttúru - á hverju? (e. Nature occupation (lossof biodiversity from indirect land use changes)).
*visteitrun í jörðu og vatni - hvernig sker "visteitrun" sig frá annarri eitrun? (e. ecotoxicity (aquatic and terrestrial)). Aðallega úr kopar og öðrum málmum sem losnar ú í andrúmsloftið.
*ofauðgun í jörðu/ofauðgun í vatni - ofauðgun hvers? (e. eutroph, terrestrial). Vegna taps næringarefna útaf aukinni notkun áburðar.
*ljósefnafræðilegt óson - ... ha? (e. photochem ozone). Virkni sólarljóss til myndunar ósons. Sjónræn mengun (mistur), óþægindi fyrir augu, öndunarfæraskjúkdómar og minnkandi gróðurfar.
*súrnun og vinnsla jarðefna - sem þýðir hvað? (e. Acidification and mineral extraction). Súrnun sjávar er alvarleg ógn við Ísland, sérstaklega fiskveiðar. Vinnsla jarðefna skilur eftir sig megnandi úrgang.
Þessi lífsferilsgreining er með gríðar hátt ROI, þ.e. nú veit fyrirtækið hvar best er að ná árangri til að minnka loftslagsvandann. Allar aðgerðir í framtíðinni verða markvissari. ÁTVR getur einbeitt sér að stóra vandamálinu og gerir það eflaust vel.
Með því minnkar vistspor ÁTVR, framtíðarkynslóðir sjá fram á bjartari tíma og heimurinn verður stórkostlegur á ný!
Sigurpáll Ingibergsson, 15.9.2017 kl. 10:24
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.