30.9.2017 | 15:19
Miðað við skoðanakannanir munum við fá:
Launalækkun í formi verðbólgu
kaupmáttarrýrnun í formi skattahækkana
Stöðnun með íþyngjandi reglugerðum
og fullt af þrítugum sýrlenzkum flóttabörnum frá Lýbíu sem má ekki gagnrýna né fá til að aðlagast.
Öryrkjar fá *ekkert*
Aldraðir fá *ekkert.* Ekkert frekar en venjulega þ.e.a.s. Ja, þeir geta fengið launalækkun og skattahækkun eins og aðrir.
Við fáum líka lán til þess að fá hærri afborganir - eitthvað verða skattarnir að fara í, ekki fara þeir í vegegerð. Og athugið hér að þetta verða hærri afborganir greiddar af lægri tekjum, vegna þess að:
Útgerðin mun færast á færri hendur
Annar iðnaður mun færast á færri hendur eða hreinlega hverfa.
Peningar munu streyma úr landi.
Þetta er stefnan sem fólk vill. Virðist mér.
Sýnir að kjósendur vilja stefnubreytingu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Vísindi og fræði | Facebook
Athugasemdir
það sem er mesta bullið i þessu er að kjosendur eru bara ekkert að spa i þetta sem stefnubreytingu þannig seð ...Þeir vilja róleg og mild stjórnmál ,halda að kona geti frekar framkallað það og vilja horfa á smetti konu þó se svolitið á ferðinni til og fra heldur en mennina sem mest hafa verið á skjánum undanfarið og allt illt á að vera kenna !......og svo i endan þessi klikkaða kvennadyrkun sem allt er að drepa ,en hefur ekki að sama skapi yfirsyn yfir það sem gera þarf ,annað en að vera kona i stöðu !
RAGNHILDUR H. (IP-tala skráð) 30.9.2017 kl. 15:49
Fólkið vill, Þjóðin vill. Almenningur krefst
Kata hefur þó flokk og fylgi bak við sig meða aðrir sem nota þessa frasa eru oft á tíðum einungis að tjá sínar eigin einkaskoðanir.
Grímur (IP-tala skráð) 30.9.2017 kl. 17:59
~20% vilja.
Það getur reynst nóg, vegna atkvæðadeilingar - að minnsta kosti 2 af 9 flokkum munu detta út, sem gerir þessi 20% ansi stórvæg.
Og... ef þetta væri einhver klikkuð kvennadýrkun, af hverju fær ekki Flokkur Fólksins eitthvað af þessum atkvæðum?
Best væri að fá hér stjórnarkreppu í svona 15 ár, svo efnahagurinn geti jafnað sig.
Ásgrímur Hartmannsson, 30.9.2017 kl. 18:09
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.