Lagalistinn á "Facelift" er spoiler fyrir "Doki Doki Literature club"

Þið getið dundað ykkur við að googla það.  Eða ekki.

Doki Doki Literature Club

DDLC er tölvuleikur sem kostar ekkert.  Þeir sem maður hittir hafa annað hvort ekki spliað hann, og fussa og sveia, eða hafa gert það, og finnst hann mest brilljant fyrirbæri síðan Tungllendingin.

Að kalla DDLC tölvu*leik* er svo aftur á frekar gráu svæði.  Jú, það er alveg hægt að fá "góða endinn," eða þannig, en tæknilega er svona lagað kallað "visual novel."

Þetta er ekkert mjög interactive.  Það er bara *spacebar* og lesa meira.  Merkilegt hvað maður dettur inní plottið.

Það er helgi.  Fyrir þá sem eru ekkert að drekka og hafa 4-6 klukkutíma, þá er hérna poppkúltúr ársins 2018 kominn.

Svo getði blístrað lokalagið.  Það er alveg gott.  Eða skemmt fyrir öllum og hlustað á Alice in chains:


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Soldið Metallica og Rammstein í sama pakka. Ekkert er annars orginal í þessum heimi og straumar og stefnur liggja á víxl.

Einu sinni svaf lítið lag sem heitir Söknuður hjá Danny Boy og þeim fæddist gimpi sem kallað var You raise me up. ;)

Jón Steinar Ragnarsson, 6.4.2018 kl. 22:45

2 Smámynd: Ásgrímur Hartmannsson

Ekkert er upprunalegt.  Allt er meira svona *í þróun.*

Ásgrímur Hartmannsson, 6.4.2018 kl. 23:25

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband