2.3.2019 | 22:22
Stundum bara fellur allt saman:
Hljómsveitin Hatari verður fulltrúi Íslands í Eurovision keppninni sem fram fer í Tel Aviv í Ísrael um miðjan maí með lagið Hatrið mun sigra.
Hatari hafði betur gegn Friðriki Ómari í einvígi en Friðrik Ómar flutti lagið Hvað ef ég get ekki elskað?
Já. Skoðum þetta aðeins:
Friðrik Ómar spyr: "Hvað ef ég get ekki elskað?" og augljósa svarið er: "Hatrið mun sigra."
Eins og púsl.
Hatari fulltrúi Íslands í Eurovision | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Vísindi og fræði | Facebook
Athugasemdir
Ást vs. hatur.
Snjóhvít bómull vs. svart leðurlatex.
Landsbyggðin (Dalvík) vs. höfuðborgarsvæðið.
Sigurvegarar undanriðla mættust svo í lokaeinvíginu.
Þetta var eins og slagorð Hatara: "allt samkvæmt áætlun"!
Guðmundur Ásgeirsson, 3.3.2019 kl. 00:15
Það eru miklar líkur á að þeir standi út úr.
Þeir eru jú Sylvía Nótt 2.0. Með smá Borat. Það þarf alltaf einn svoleiðis öðru hvoru.
Ásgrímur Hartmannsson, 3.3.2019 kl. 10:37
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.