17.9.2021 | 16:36
Heimska félagshyggjufólks er endalaus
Hér er viðtal við tvo fasista á Harmageddon, þar sem þeir tjá sig um "stóreignaskatt." Semsagt eignaupptöku.
Og hvernig á það að virka?
Jú, allir sem eiga eignir verðlagðar yfir 200 milljónum borga X prósent fyrir að eiga þá eign.
Sem hefur þær augljósu afleiðingar að:
1: allir sem leigja í fjölbýli þurfa að borga hærri leigu.
Þetta er vegna þess að fjölbýlishús kosta öll meira en 200 milljónir, og þegar eigandi þeirra þarf skyndilega að broga Stóreignaskatt, þá þýðir það einfaldlega að leigan hækkar.
2: allir sem kaupa eitthvað úti í búð þurfa að borga hærra vöruverð.
Þetta er vegna þess að verzlunarhúsnæði kostar allt meira en 200 milljónir, og þegar eigandi þeirra þarf skyndilega að broga Stóreignaskatt, þá þýðir það einfaldlega að verðlag hækkar.
3: gamalmenni sem búa í skuldlausum einbýlishúsum geta lent á götunni ef
A: húsið er metið á meira en 200 milljónir
B: fasteignamatshækkun verður til þess að það verður metið á 200 milljónir.
En það er nú svo, að enginn sem ekki hefur orðið fyrir súrefnisskorti við fæðingu getur verið sósíalisti. Þess vegna hugsa þeir ekki.
Flokkur: Vísindi og fræði | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.